Kirkjuritið - 01.03.1935, Side 31
Kirkjuritið. Kirkjudeilan á Þýzkalandi.
119
að senda fulltrúa, og enginn erlendur biskup kom þar
nærri.
Um þvert og endilangt landið var liann „hrópaöur af“,
115 háskólakennarar i guðfræði símuðu honum á þessa
leið: „Herra ríkisbiskup! Vér háskólakennarar í guð-
Iræði heimtum af yður, að þér gerið kirkjunni, sem er
í brotum og þvrstir eftir friði, þann greiða að víkja sam-
stundis úr embætti“. 1 okt. neitaði Ivarl Bartli að vinna
Hitler emhættiseið, sem þá var nýfarið að lieimta; var
lionum þá vikið úr embætti sínu, þrátt fvrir mikil and-
niæli. Síðan slítur hiskupinn i Baden sambandi við
l'Iúller og kirkjustjórnendur hans, áður var hann stuðn-
ingsmaður lians. Biskupinn í Sclileswig-Holstein slítur
sambandi við þá þýzk-kristnu, og um sama levti verður
hinn þýzk-kristni biskup í Hessen-Kassel að víkja úr
embætti, og nú fara sjálfir lögfræðingar national-socialista
uð lýsa opinberlega jrfir því, að stjórn ríkisbiskups hafi
nm langan tíma verið ólögleg.
í sumar sagði mér þýzkur háskólakennari, að Múller
i’íkisbiskup hefði boðið v. Bodelschwingh sem eins og
áður er sagt var látinn víkja úr embætti fyrir honum
biskupstign yfir Westplialen, en v. Bodelscliwing hefði
•svarað, að ef hann tæki því boði, vrði Múller sjálfur
fyrst að vikja. En nú hefir Múller orðið að auðmýkja
sig enn meir: Fvrir áramótin síðustu var hann á rífeldu
nndanhaldi, sem lauk með mesta ósigri hans, þar sem
andstæðingar hans voru látnir mynda bráðabirgða-
hirkjumálaráðuneyti með Marahrens í hroddi fylkingar.
Menn héldu, að deilunni um kirkjuna færi að ljuka, en
fullnaðarsigur er þó ekki fenginn, samvizkufrelsi og
kenningafrelsi hafa prestarnir ekki fengið enn og rit-
þvingun er enn svo mikil, að mjög er erfitt um fulla
vitneskju, og þaulkunnugur maður þýzkur skrifaði mér
fvrir skömmu, að enn hefðu orðið vonbrigði, því að
Marahrens gæti fátt eitl gert.