Kirkjuritið - 01.03.1935, Side 37
Kirkjuritið.
Sálmabókarmáli'ð:
125
UIn þeim, sem hr. Gísli tilfærir. Þar stendur:„Sá er mestur, sá
er beztur“ i staðinn fyrir: „Sá er mestur, sem er beztur“. Ég
l®t þetta sýnishorn nægja, því að of langt mál yrði, að telja
UPP ailar breytingarnar, enda er það með öllu óþarft, þar sem
Þeba „sálmabókarmál" er fyrir löngu útkljáð.
Ólafur fíriem.
ANDSVAR.
Jón skáld Magnússon hefir farið á stúfana til þess að afsaka
arásir þær, sem „sálmabókar-viðbætirinn" varð fyrir, og hygst
3ð mótmæla grein minni í síðasta Kirkjuriti. Hann „mátti ekki
vera að því“ að htusta á mig, er ég flutti erindi um málið i
þyrjun þessa vetrar, en á eftir sagði hann mér, að hann hefði
ekki verið með í kærendahópnum vegna sjálfs sín (hann hafði
l)ur undan engu að kvarta), hetdur vegna séra Jóns sál. Þor-
lúkssonar á Bægisá! Veit nú víst enginn til þess nema hann,
að honum hafi verið falið þetta sjerstaklega, né heldur mun
hann vera þar réttur aðili að lögum. Svo að kæran var mark-
l^us. En áhuginn var svo mikill, að ekkert stóðst fyrir, enda
hefir hann ekki komist hjá því að hlaupa á sig i sleggju-
dómum um mig og aðra, eins og lesendur geta sjálfir gengið
Ur skugga um.
Ritstj. Kr. hafa gefið mér kost á að hnýta fáum orðum við
þessar aths. J. M., en ég tel mér algert nægja að taka það fram,
að heimildir hafði ég að frásögn minni, auk þess, sem fgrirfinsl
°Pið ölliunt, sem vilja rannsaka þetta, frá sjálfri sálmabókar-
nefndinni, eða þeim nefndarmönnum, er til náðist, og var þar
engu brjálað. Hygg ég, að ekkert af því hafi verið hrakið, en
um hitt tjóar ekki að fást, þótt menn hafi ólíkar skoðanir á
þessum kveðskap (eins og reyndar kveðskap yfirleitt) eða á
hinum margumtöluðu „breytingum" nefndarinnar. Það lítur út
fyrir, að J. M. telji sjálfan sig bærastan að dæma um þessa
hluti, og rná hann eiga það álit sitt fyrir mér. Ég hefi ekki leynt
þvi, að ég tel athugasemdir flestra kærendanna tóman hégóma-
skap, og hefir ekkert komið fram, er hnekki því.
Mega svo aðrir leggja sína dóma á alt þetta mál, en vitaskuld
helzt ekki fyr en þeir hafa kynt sér það.
Um linur Ólafs Briems er ekkert að segja. Ég tel heldur ekki
um neinar „afbakanir“ að ræða hjá nefndinni á sálmum afa
hans.
G. Sv.