Kirkjuritið - 01.06.1937, Side 5

Kirkjuritið - 01.06.1937, Side 5
KirkjuritiS. Af öllu lijarta. 203 fast við efnishyggju 19. aldarinnar, sýna sig bera að fá- fræði, er þeir telja þekkingarleit mannanna benda þeim • áttina frá guðstrúnni. Það undarlega er orðið, að efn- isvísindin eru að leiða bugi manna burt frá efninu, og l)enda þeim inn á hinar huldu leiðir andans. Stórfróður visindamaður þýzkur, sem hefir kynt sér allar nýjustu niðurstöður efnisvísindanna og rannsakað ábrif þeirra á guðstrúna, hefir sagt: „Alt, sem vakti trúarkend manna á fyrri dögum við skoðun náttúrunnar, er óbreytt: Hin ómælanlega víðátta albeimsins, samræm niðurskipan, sem maðurinn er einn liður í, bin djúpa gleði yfir lífi náttúrunnar og gátum hennar, undrunin yfir þeirri speki, sem livarvetna birtist. Öll þessi áhrif bafa ekki dofnað með djúptækri þekkingu, beldur þvert á móti niagnast enn meir. Aukist befir framar öllu öðru þeklc- ingin á einingu allra krafta og verkana, á einstakleik livers bluta jafnt sem á samhengi heildarinnar; alt hið einstaka verkar úl yfir sjálft sig á heildina og verður fyrir áhrifum af henni, og hún er orðin að alheimi (þar sem fallið er burt djúpið milli himins og jarðar), sem vex óendanlega og ófyrirsjáanlega í rúmi, tíma og orkufyllingu“ (Arthur Titius: Natur und Gott, bls. 630). Ég læt þetta nægja um viðhorf trúar og vísinda, eða þátl trúarinnar í þekkingarleit manna. Mér virðist það oiega nú vera fullljóst, sem ég' áður sagði, að engin trú- arbragða-líki, hvort heldur þau birtast í þjóðfélagslegri viðleitni, eins og umbótatilraunir kommúnista, eða ein- Idiða dýrkun skynseminnar, eins og algengt var á síðari hluía 19. aldar, eða öðrum frumstæðari formum, geta íullnægt þörfum mannsandans. Og nú sný ég mér að hinu jákvæða, og byrja á því að spyrja: Hver er sú trú, sem fullnægju gefur? Samkvæmt einföldustu skýrgreiningu hugtaksins trú,frá sjónarmiði frjálslvnds kristindóms, er trú sama sem traust; kristin trú sama sem traust til hins almáttuga föð- ur, sem Kristur kendi oss að þekkja. En þetta traust

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.