Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 14
212 Þorgrímur Sigurðsson: Kirkjuritið. liún getur auk þess sjálf skajjað sér ýms önnur starfs- form, sem látin eru óátalin, þótt ekki séu þau studd af ríkinu. Og sú var líka tíðin, að hinn þrefaldi starfsvett- vangur þjóðkirkjunnar gat fullnægt henni og fært henni tækifæri til þess að ná til hvers einasta manns. Þá var uppfræðsla barna að miklu leyti í höndum presta og kristinfræði sú eina námsgrein, sem nokkurs var krafist í. Ég vil engan veginn halda því fram, að æskilegt væri að hverfa aftur að þvi fyrirkomulagi, en aðeins benda á, að þá var nægur tími og óþreytt náms- geta til þess að gera kristnum fræðum þau skil, sem þau eru verð. Þá voru guðsþjónusturnar nálega þeir einu mannfundir, sem um var að ræða, og því ekki að óttast messuföllin, sem nú eru svo mjög notuð sem vopn gegn kirkjunni. Tið messusókn og margir kirkju- gestir voru þá trygging þess, að boðskapur kristindómsins hærist öllum til eyrna. Og loks voru prestköllin þá ekki stærri en svo, að um náin kynni milli prests og safn- aðar gat verið að ræða, og fullkomið trúnaðarsamhand myndast þar á milli. Mun það ekki hvað sízl hafa ver- ið kristnilífi þjóðarinnar ómetanleg hlessun. Nú er viðhorfið um þetta þrent orðið alt annað. Barnaskólarnir hafa tekið að sér kristindómsfræðsl- una að hálfu leyti eða jafnvel meira. Ber það sízt að lasta, þar sem völ er á vel hæfum kristinfræðikennur- um. Fer vel á því, þar sem prestur og kennari starfa í sama anda. Er slík samvinna þá vænleg til góðs árang- urs. Getur hún varnað því, að börnin fái þá hugmynd um kristin fræði, að þau sé einhver kredda, sem prest- arnir einir séu að burðast með, en sé annars óviðkom- andi almennu námi. En því miður á það sér stað í barna- skólum sumstaðar í þessu landi, að smeygt sé inn hjá börnunum efa um réttmæti kristinnar fræðslu og vak- in hjá þeim andúð gegn henni. Auk þess er námstími skólanna svo ásetinn, að hvergi nærri gefst tækifæri til að kenna kristindóm sem skyldi. Þar við bætist, að

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.