Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 21

Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 21
Kirkjuritiíi. KirkjugarSar. 219 sá grafreitur, þar sem 511 leiði væru með sama sniði og svip, einföld, smekkleg og Iraust, en laus við prjál og æpandi skraut. Því að í kirkjugarðinum eru allir jafnir. Þar hvílist fátækur og ríkur, gæfumaðurinn og sorgar- barnið hlið við hlið. Og er ekki nóg að burðast með hrokami og prjálið alt lífið, þótt þvi sé ekki lika skelt yfir mann dauðan í kirkjugarðinum? Ég vil nú leyfa mér að skjóta hér fram minni hug- mynd um það, livernig kirkjugarður framtiðarinnar ætti að vera. Frá sáluhliði liggi hreiður gangstígur eftir garðinum endilöngum, og sé i miðjum garðinum autt svæði, ætlað fyrir kirkju eða kapellu. Frá aðalgötunni liggi siðan gangstígir út til heggja handa og mvndi rétt horn við aðalgötuna, og sé tveggja graflengda hreitl svæði milli slíga þessara. Umhúnaður allra leiða sé með sama sniði, lág umgjörð steinsteypt, og séu stafnar umgjörðarinnar með hurstalagi, stöllóttir eða stuðlaðir þannig, að hæst- ur sé stuðull á miðjum gafli, en fari siðan lækkandi, svo að vztu stafnstuðlarnir -séu aðeins lítið eitt hærri en liliðarnar. Á þann gaflinn, er að gangstíg veit, sé steypt- ur í stafninn lítill járnkross með áletruðu númeri þess manns á kirkjugarðsskrá, er þar hvílir. I hverja umgjörð sé gróðursett eitt tré, og svo þau blóm, sem aðstandend- ur kjósa sér og vilja halda þar við. Samkvæmt gildandi lögum leggur rikið lil ókeypis að setja á hvert leiði, svo fljótt sem við verður komið, og annaðist kirkjugarðsvörðurinn þann umbúnað, gegn ákveðnu gjaldi, eða sá maður annar, er það væri falið með samningi við sóknarnefnd. Önnur minnismerki ælti ekki að helmila í grafreitum, nema sérstök ástæða þætti til, enda væri þá skvlt að leggja jafnframt fram ákveðna fjárhæð í legstaðasjóð til æfinlegs viðhalds minnismerkisins. Vilji menn sérstaklega viðhalda minn- ingu látinna vina og heiðra liana, sýnist skynsamlegra að gjöra þetta á þann liátt, að láta gjöra af þeim vandaðar

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.