Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 41
Kirkjuritið. Erlendar fréttir. 239 og Kultur“ og aukið hróður hans um öll Norðurlönd. Hann hefir einnig getið sér ágætan orðstír fyrir biskupsstarf sitt á Háloga- landi á undanförnum árum, sérstaklega er viðbrugðið sálgæzlu hans og hvílikan styrk og traust prestarnir í biskupsdæmi hans hafi átt lijá honum. Þess má vænta af honum, að hann beri giftu til að stjórna vel málum norsku kirkjunnar, svo að horfi til meiri einingar með þeim, sem Kristi vilja vinna, enda þótt sitthvað beri á milli í skoðunum. Oslóarbiskupinn nýi hefir glöggvan skilning á því, að þegar lifið sjálft knýr á, og fræið fer að skjóta frjó- öngum, þá varðar minna um hýðið. Tímamót í Palestínu. Síðan Gyðingar tóku aftur að streyma i liópum til Palestínu, hafa öðru hvoru orðið blóðugir árekstrar milli þeirra og Araba búsettra í landinu. Þykir Aröbum það hart, að Gyðingum skuli haldast uppi að kaupa sífelt meiri og meiri jarðeignir í landinu, sem þeir hafa yfirgefið fyrir ianga löngu, en Arabar átt heima i síðustu 13 aldirnar. Þeir kenna Englendingum um, að þeir vilji með ólögum eyða landi þeirra. Skæðust urðu upphlaup Araba síðastliðið sumar og ullu þau miklu tjóni. En i október- mánuði stöðvuðust þau og konungskipuð nefnd kom frá Eng- landi, til þess að kynna sér ailar aðstæður og semja því næst álit og tiilögur um það, sem gjöra skuli. Nefndin hefir nú ferðast um og hlýtt á málaflutning heggja aðilja, Gyðinga og Araba. Gyðingar fara fram á það, að Englendingar sýni af sér meiri festu og röggsemi og taki þá hiklaust i vernd sína gegn árásum Araba. Þeir óska þess að fá að flytja örar inn, þvi að það sam- rýmist vel batnandi þjóðarhag. Útmælingu landsins til þeirra miði alt of hægt, og muni taka heila öld með sama áframhaldi, ennfremur bresti mjög á það, að framræslur, áveitur o. fl. séu í viðunandi lagi. Ólöglegan flutning Araba úr nágrannalöndunum verði að hefta. Hebreskan þurfi alstaðar að verða viðurkent mál og landið nefnast sinu rétta nafni Erez lsrael (land ísraels), en ekki E. I., eins og Englendingar stytti það. Arabar kvarta aftur á móti einkum yfir því, hve mikinn hluta af landinu Gyðingar séu búnir að eignast, þeir eigi meira en helming af öllu hezta landinu, Saronsléttuna við liafið og Emek- sléttuna milli Karmelfjalls og Jórdanar, en sjálfir flosni þeir upp og leiti til bæjanna, þar sem örhirgð og skortur bíði þeirra. Þeir krefjasl þess, að bannað verði með lögum að selja Gyðingum jarðir og skorður verði reistar við yfirgangi þeirra. Þeir telja Palestínu sitt land og mótmæla harðlega, að útvarpið skuli

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.