Kirkjuritið - 01.06.1937, Qupperneq 15

Kirkjuritið - 01.06.1937, Qupperneq 15
Kirkjuritið. Ríki, kirkja og skólar. 213 hin víðáttumiklu sveitaprestaköll torvelda mjög og tak- marka störf prestanna að fermingarundirbúningi. Skal það þó játað, að þar gætum vér prestar sumir unnið meira en vér gerum. Víðast mun lítið nægja, og verður sumstaðar við það að sitja, að tala við börnin nokkurum sinnum fyrir ferminguna og byggja þá fyrst og fremst á þeim þekkingarforða, sem skólinn hefir látið þeim í té. Þá eru guðsþjónusturnar. Þeim er ætlað að glæða og efla þau kristilegu áhrif, sem heimili, skóli og kirkja liafa reynt að skapa. En þær eru samkvæmt eðli sínu fyrst og fremst miðaðar við hæfi þeirra, sem þegar eiga ein- hverja hlutdeild i kristilegri lífsskoðun. Þær geta tæp- lega orðið liður í úlhreiðslustarfsemi meðal þeirra, sem annaðhvort standa andvígir eða áhugalausir gagnvart kirkjunni. Þverrandi messusókn á sumum stöðum, sem niargar ástæður liggja til aðrar en minkandi trúarálnigi, gera þær og miður heppilegt starfsform til slíkra stór- ræða. En að minni hyggju fer því svo fjarri, að messu- föllin séu sönnun þess, að þjóðin hafi ekki þörf fyrir starfsemi kirkjunnar, að eimnitt þau, ef andúð veldur, eru sterkasta röksemdin fyrir þvi, að kristileg lífsskoð- un eigi ekki full ítök með þjóðinni, og kirkjan hafi því enn sitt ldutverk að vinna í þjóðfélagsins þágu. Um síð- asta alriðið er svo það að segja, að prestaköllin eru nú víðast orðin það stór, að mjög brestur á um persónulega kynning presls og safnaðar. Sviftir það prestinn læki- færinu til að kynnast andlegum þörfum einstaklinganna og uppfylla þær, auk þess sem það torveldar alt starf bans, einnig liin opinberu embættisverk. Að öllu þessu athuguðu er það sýnilegt, að liin is- lenzka þjóðkirkja þarf umfram all að eignast nýjan starfsvettvang, þar sem hún geti betur náð til hvers einstaklings en hún gerir nú, ef hún á að vera fær um að rækja hið þjóðfélagslega hlutverk sitl eins vel og áð- ur. Sá starfsvettvangur er þegar til, og ríkið hefir yfir honum að ráða. En hann er eins og nú standa sakir

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.