Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Síða 8

Kirkjuritið - 01.03.1941, Síða 8
86 Magnús Jónsson: Marz- menn vilja sérstaklega láta sýna kenningu Krists sjálfs, t. d. Markúsarguðspjall, sé frumlegri og betri heimild að þessari kenningu en bréf Páls? Þetta gæti verið nógu fróðlegur samanburður, og eg er til í að gera hann, ef einhver óskar að ræða þetta mál. Það mun altaf verða ofan á, að bréf Páls eru elzta og sterkasta heimildin, sem til eru um frumkristnina, og t. d. það, sem hann segir um dauða Jesú og upprisu í 1. Kor. 15, og um kvöldmáltíðina í 1. Kor. 11, eru, eins og t. d. Eduard Meyer dregur fram, elzti kjarni hinnar kristnu sögu. Eg sný mér þá að efninu sjálfu, mynd Páls. Eg sagði áðan, að hann gnæfði hátt. Það er fyrsta einkenni hans: Hann er foringinn, borinn til höfðingja og hefir flest, ef ekki öll, einkenni foringja. Við sjáum hann aldrei öðruvísi en i forustu, hvernig sem högum hans er hátt- að annars. Við heyrum fyrst um hann, meðan hann var Gyðing- ur. Postulasagan bregður á hann skyndiljósi við líflát Stefáns iiíslarvotts. „Og vottarnir lögðu yfirhafnir sinai' að fótum ungum manni, er Sál liét“ (Post. 7, 58). Líklega hefir hann þá verið við nám í rabbínafræðum i Jerú- salem. En forustumaður er hann orðinn. Þetta kemur og fram strax á eftir. „Sál .... blés ógn- um og manndrápum geg'n lærisveinum drottins o. s. frv.“ (Post. 9, 1, sbr. og 8, 3). Og ef menn halda, að í þessu efni sé ekki liægt að treysta frásögn Postulasögunnai', því að hún geti verið lélegt sagnarit og full af helgisög- um og ýkjum, þá vil eg benda á orð Páls i öruggustu bréfum hans, eins og t. d. Galatabréfinu: „Þér hafi'd auðvitað heyrt um háttsemi mína áður fyr í gyðing- dómnum, að eg' ofsótti ákaflega söfnuð Guðs og eyddi hann (Gal. 1, 13). Eða þa í 1. Kor. 15, 9: „Því að eg er minstur postulanna og ekki þess verður að kallast post- uli, með þvi að eg ofsótti söfnuð Guðs“. Eg vil þá líka, rétt til þess að benda mönnum á, að það eru ekki guð-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.