Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 40
Marz. Fréttir. Séra Pétur Helgi Hjálmarsson, féhirðir Prestafélags íslands og afgreiðslumaður Kirkjuritsins, fyrrum prestur að Grenjaðarstað, andaðist að lieimili sínu hér í bænum 17. marz eftir stutta legu. Minningargrein um hann mun birtasf i næsta hefti Kirkjuritsins. Prófastsfrú Guðrún Sigurðardóttir, ekkja séra Sigurðar Jenssonar, prófasts i Flatey á Breiðafirði, andaðist í Reykjavik 19. marz síðastl. Þrjú ný lagafrumvörp um kirkjumál. Magnús Jónsson liefir borið fram á Alþingi þrjú frumvörp, sem varða kirkjuna miklu, ef þau ná að verða að lögum I. Eitt er um kirkjuþing íslenzku þjóffkirkjunnar. Hefir það inái verið undirbúið af nefnd í Prestafélagi íslands og rætt bæði á fundum þess og á prestastefnu. Er í þessu frumvarpi reynt að taka tillit til þeirra athugasemda, sem fram hafa komið. Aðalefni þess er þetta: Kirkjuþing skal halda annaðhvert ár ,í Reykjavik. Kjörnir kirkjuþingsmenn eru 14 kosnir í 7 kjördæmum og 1 af guðfræðideild. Kjördæmin eru þessi: 1. Reykjavík og Kjalarness- prófastsdæmi, 2. Mýra — Daiaprófastsd., 3. Vestfirðir, 4. Húna vatns og Skagafjarðarprfd., 5. Eyjafjarðar—Norður-Þingeyjaprfd.. (5. Norður-Múla—Austur-Skaftafellsprd. og 7. Vestur-Skaftafells— Árnesprfd. — I hverju kjördæmi eru tveir fulltrúar, presiur og leikmaður. Kjósa prestar einn úr sínuin hóp og sóknarnefndar- menn og safnaðarfulltrúar einn úr sínum hóp. Kosningin er skrif- leg og leynileg og er stjórnað af kjörstjórn i Reykjavík undir forsæti biskups. Kjörtímabil er G ár. — Auk þessara kjörnu full- trúa, alls 15, eiga sæti á kirkjuþingi: Biskup, sem er forseti kirkju- þings og kirkjuráðsmenn. — Verkefni kirkjuþings er að vera ráð- gefandi um öll málefni kirkjunnar. — Auk þessa eru svo ákvæði um þingfararkaup, varamenn o. fl. II. Annað frumvarpið er um biskupsdæmi þjóðkirkjunnar■ Biskupar skulu vera tveir, annar í Reykjavík og nefnist Skál- holtsbiskup, en hinn á Akureyri og nefnist Hólabiskup. — Skál- holtsbiskupsdæmi er frá Austur-Skaftafellsprfd. til Strandapró- fastsdæmis, en Hólabiskupsdæmi frá Húnavatnsprfd. til Suður- Múlaprfd. — Prestar í hvoru biskupsdæmi kjósa sér hiskup. Kýs hver prestur einn, og ræður meirihluti, en allir þeir, er rétt liafa lil prestsembættis í þjóðkirkjunni, eru kjörgengir. Skálholtsbiskup er forseti kirkjuráðs, en prestastefnur verða sín í livoru biskups-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.