Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 32
Tillögur til prestakallanefndar
um skipun prestakalla í Húnavatnsprófastsdæmi.
(Birtar samkvæmt beiðni héraðsprófasts).
Ég tel, að í Vestur-Húnavatnssýslu geti ekki verið
um samfærslu að ræða. Hinsvegar hefði, að mínu áliti.
verið æskilegt, að bætt hefði verið við einum presti, er
sæti á Hvammstanga, sem er upprennandi kauptún. Ætti
kirkjan í Kirkjuhvanuni, sem er gömul og lirörleg að
færast í kaupstaðinn, enda er það eftir ósk Kirkju-
hvammssóknar. Yrði þá hið sameinaða Staðarhakka og
Melstaðarprestakall viðráðanlegra, enda yrðu Efra-Núps
og Staðarbakkakirkjur sameinaðar í eina kirkju.
Hér í austurliluta prófastsdæmisins teldi ég heppileg-
ast, þegar hrú væri komin á Blöndu hjá Tungukoti, að
Auðkúlu og Bergstaðaprestaköll yrðu sameinuð þannig.
að Bergstaða og Bólstaðarhlíðarsóknir yrðu sameinað-
ar Auðkúluprestakalli.
Kirkjur hinna smáu Svínavatns og Auðkúlusókna
mætti sameina í eina kirkju, er stæði lijá saxnkomuhúsi
sveitarinnar, en Holtastaðasókn og Blönduóssókn yrðu
nýtt prestakall, og sæti presturinn á Blönduósi. Jafn-
framt yrði sá hluti Blönduóskauplúns, er tilheyrir nu
Höskuldsstaðasókn, sameinaður hinu nýju Blönduós-
prestakalli.
Enda þó eflaust verði hið á, að þessar hreytingar kom-
ist á, tel ég rétt, að stefnt sé að því, er kringumstæður
leyfa, að koma þeim í framkvæmd. Til dæmis liggur
beint við að koma nú þegar á þeirri breytingu að sani-
eina framangreindan hluta Höskuldsstaðasóknar Blöndu-