Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 34

Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 34
112 H. H.: Vinsamleg leikmannsrödd. Marz. l)átt í guðsþjónustunum og færa sér þannig fullkomlega í nyt trúai'- legt og siðferðilegt gildi þeirra. Til þessara erfiðleika finnur hver einasti prestur oft og margsinnis á ári hverju, og það er víst, að hann ber ekki lilýjari eða þakklátari hug til nokkurs manns en þess, sem af fúsum og frjálsum vilja vill vera honum til hjálpar og aðstoðar í starfinu í einhverri mynd. Það er oft þreytandi að vera einn á ferð, en það er beinlínis sárt að standa einn í ábyrgðar- miklu starfi. Á þessu þarf auðsynlega að ráða bót, ef kirkjan á að verða nokkurs megnug í framtiðinni og firra þjóðina þeirri eyðing trúarlegra og siðferðilegra verðmæta, sem er óhjákvæmileg af- leiðing þverrandi álirifa kirkjunnar. Og það er vissulega hægt að lækna meinsemdirnar, ef „fólkið þorir“ — þorir að biðja fyrir prestinum og starfi hans af ótta við það, að einhver kunni að brosa að slíku og telja það koma að litlu lialdi. En ég er þess full- viss, að vér prestar þörfnumst einmitt einskis frekar, en fyrir- bæna safnaða vorra, svo víst sem það er, að enginn vani, ekkert verk er sem bænin hrein og sterk dýrmætt hér í heimi. Það er margsannað og reynt, að einlæg bæn er frábæi' stuðningm' hverju góðu málefni og farsæl leið til sigurs. En jafnframt ska! sérstaklega á það bent hér, að í lijarta hvers þess manns, sem biður fyrir presti sínum, vaknar ósjálfrátt áhugi fyrir starfi hans og löngun til þess að stuðla að því, að það megi verða bæði á- hrifaríkt og ávaxtaríkt. Fyrir því vildi ég að lokum mega segja við alla þá leikmenn, sem orð mín lesa: Vér prestar þörfnumst aðstoðar yðar og liðsinnis bæði í orði og á borði. Byrjið á þvi að biðja fyrir oss. Þá mun alt hitt veitast oss að auki. Hálfdan Helgason.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.