Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 23

Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 23
KirkjuritiS. Aukatekjur presta. 101 Presta er þannig, að annaðhvort verða þeir að gerast stórbændur, og taka að sér jörð eða jarðir, sem fylgja Prestakalli þeirra, eða vera heimilislausir einhleypingar. ^eiðja leiðin er til, sú, að gerast nokkurskonar tómthús- Jnaður við þröngan kost og lítil húsakynni, verða einskis- 1-áðandi hornreka í sinni eigin kirkjusókn. Þannig er endurreist hin fyrirlitna leiguprestastétt liðinna alda. Alt þetta er ilt. Ríkisstjórnin ætti að sjá sóma sinn í því að ganga hreint til verka og annaðhvort leggja presta- stéttina niður, eins og hvert annað úrelt fyrirkomulag, eða gera kjör hennar slík, að hún sé ekki hrakin út úr S1num verkahring, vegna daglegra nauðsynja. Skilnings- leysið gagnvart prestunum bæði hjá yfirvöldum og söfn- ufium á sinn þátt í því að eyðileggja álirif þeirra og (lrePa þann áhuga, sem þeir hafa í byrjun. Þannig mun skapast, ef ekki er að gert, einn „pokinn“ öðrum ónýtari. En þó að launakjörunum sé yfirleitt ábótavant og þau kh viðunandi, þá er þó ekkert eins ranghverft í þeim efnum og hinar svonefndu aukatekjur. Hefir hinn virðii- le§i »gamli klerkur“ bent rækilega á það í grein þeirri, sem áður er getið. En hann hefir þó ekki tekið fram Veruleg atriði, sem ég tel ástæðu til að benda á. 1 fyrsta lagi skapa aukatekjurnar launamun, sem get- Ur orðið alveg óviðunandi. Þótt segja megi, að þeim beri 'Heira, sem vinna fleiri aukaverk, þá er það nú svo, að astæðurnar geta skapað úr því ósanngirni, að svo sé. Hvernig á sveitapresturinn að fá vel launuð aukastörf, sem bæta honum upp tuttugu sinnum minni aukatekjur en kaupstaðapresturinn hefir? Hann getur unnið það á kúi sinu svara menn. Um rök fyrir slíku svari læt ég þá sPjalla, sem þekkja hinar skjótfengnu tekjur sveitavinn- l,nnar. Þótt sveitapresturinn gengi nú til verka á túni sínu snnnudaginn, sem bæjarpresturinn fermir fimtíu börn, kýst ég við, að munurinn yrði talsverður. Annað er það íara langa og erfiða ferð á eiginn kostnað til þess að skíra barn, eða láta koma með það heim í stofu til sín

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.