Kirkjuritið - 01.03.1941, Síða 28
Marz.
Andleg búhyggindi.
í 13. árgangi Prestafélagsritsins birtist grein eftir Þór-
arinn Þórarinsson, nú skólastjóra á Eiðum, með ofan-
ritaðri fyrirsögn. Ræðir hann þar um þau andlegu bú-
hyggindi, sem hann kyntist bjá presti einum þýzkum, en
bann Jiafði safnað saman í bækur tilvitnunum úr dag-
blöðum og bókum, tímaritum og bæklingum, einstökuni
setningum, likingum, smásögum, dæmisögum, Ijóðum og
ljóðabrotum, sem snert gátu þann boðskap, sem hann
vildi flytja söfnuðum sínum. Öllu var þessu raðað eftiv
efni í stafrófsröð, svo að auðvelt var að finna á svip-
stundu alt, sem snerti það efni, er um var fjallað í livei't
sinn.
Á aðalfundi „Hallgrímsdeildar“ í sumar sem leið, vakti
ég máls á því, hvort ekki mundi æskilegt, að íslenzkir
prestar gerðu með sér samtök um það að hagnýta þá
reynslu, sem þeir hafa safnað sér, bæði með lestri og
starfi, svo að hún liggi fyrir á aðgengilegan hátt í safnb
þar sem hver geti fundið dæmi eða setningar til skýr-
ingar því máli, er liann ræðir um í prédikun sinni. VorU
þar samþykt tilmæli til stjórnar Prestafélags Islands
um það, að hún léti safna í eina heild því, sem prestai'
knnna að eiga í fórum sínum af slíkum hjálpargögn-
um við ræðusamning, sem getur um liér að ofan, og
yrði það síðan endurskoðað og samræmt og, ef ffert
þætti, gefið út til afnota fyrir islenzka presta.
Stjórn Prestafélags íslands hefir tekið þessari mála-
leitun vel og mun þegar hafa gert noklcurar ráðstafanir
til framkvæmda. En vitanlega veltur hér mest á þvi, að
prestar alment bregðist vel við að leggja í þetta sarn-
eiginlega forðabúr, sem á að geta orðið góð hjálp í harð-