Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Side 30

Kirkjuritið - 01.03.1941, Side 30
108 Björn Magnússon: Márz. sjálfkjörið til forystu í því. Og að sjálfsögðu er rétt að gera um leið aðgengilegt íslenzkum prestum úrval af þvi, sem safnað hefir verið með öðrum þjóðum i sama tilgangi, enda þótt það sé takmarkað, hversu vel það á við íslenzka staðháttu, enda er þar af miklu að taka, og margt er þar sígilt og algilt, enda þótt annað sé hund- ið við stað og' stund. „All er hey i harðindum", segir málshátturinn. En ekki má velja í þessar andlegu fóðurbirgðir eftir þeirri reglu. Enda þótt á það væri bent, hversu gott er að geta gripið til birgðanna i harðindum, j)á á hér reyndar ekki aðeins að vera hallærisfóður, heldur sígilt kjarnfóður, sem æ má taka til og verður sífelt til að gera ræðuna kjarnbetri og auðugri. „Ræða yðar sé ætið ljúfleg og' salti krydduð“, sagði Páll. Meistarinn sjálfur kryddaði ræðu sína með dæmum úr daglegu lífi, orðskviðiun og tilvitnunum í andríkar bókmentir. Daufleg er ræða vor, ef vér forsmáum að fara þar að dæmi lians. Þegar ég ræddi þetta mál í „Hallgrímsdeild“, hafði ég ekki í minni grein Þórarins Þórarinssonar, þá, er áð- ur getur. En eftir að hafa nú veitt henni athvgli, get ég húist við, að fleiri prestar hafi notfært sér bendingar hans og farið að dæmi hins þýzka prests en ég áður hafði g'ert mér von um. Er því væntanlega úr töluverðu efni að velja, og er þess að vænta, að prestar veiti Presta- félagi Islands aðgang að söfnum sinum, svo að þau geti komið að sameiginlegum notum. Margir prestar hafa einnig þann sið, að strika undir eða merkja við í hók- um sínum það, sem þeim þykir vel sagt eða athyglis- vert. Með nokkurri fyrirhöfn gætu þeir tekið saman þá staði, sem þeim þættu líklegastir til að koma að gagni í þessu sambandi, og' sent Prestafélaginu listann. Allir prestar hafa ýmislegt að segja úr andlegri reynslu sinni eða starfi sínu, sem komið gæti öðrum að liði. Einnig' það gætu þeir skráð og' komið því á framfæri. Ég skal nú ekki fjölyrða meira um þetta efni að sinni,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.