Kirkjuritið - 01.03.1944, Blaðsíða 16

Kirkjuritið - 01.03.1944, Blaðsíða 16
9'4 Bjarni Jónsson: Marz. ir vænt um, að það er sagt: „Allt til góðs“. Þetta skildi hann svo vel, af þvi að hann liafði reynt það. Af eigin reynslu gat hann horið því vitni, að allt verður til góðs, ef lifað er i samfélagi við Drottin. Þessvegna prédikaði hann um það, sem getur ekki brugðizt. Þegar ég hugsa um prestsstarf séra Jóhanns, verða þessi orð nálæg huga mínum: „Ég hlífðist ekki við að hoða yður allt Guðs ráð“. (Post. 20. 27.). Ég kunngjörði trúfesti þína og' hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og tryggð í hinum mikla söfnuði“. (Sálm. 40. 11). Séra Jóliann þekkti kraftinn, sem kemur ofan að, og fyrirvarð sig ekki fyrir fagnaðarerindið. Því þurfti aldrei að leyna. Auðmjúkur var hann, hógvær og sannur. Hann vildi ekki villa á sér heimildir. Aðalatriðið var, að menn sæju náð Drottins, að þeir hlustuðu þannig á þjóninn, að tekin væri ákvörðun að fylgja Drottni, sem þjónninn vitnaði um. Það segir svo í orði Guðs: „Þeir lieju'ðu Jó- hannes tala þetta, og fóru á eftir Jesú“. (Jóh. 1. 37.). Þannig á prestsstarfið að vera. Séra Jóhann var prest- ur í anda þessara orða. Aldrei gleymdi liann þessari játningu: „Ekki prédikum vér sjálfa oss, heldur Krist .Tesúm sem Drottin, en sjálfa oss sem þjóna yðar vegna .Tesú“. (2. Kor. 4. 5.). Sjáum sér ekki í orðum þessum mynd af prestinum, sem vér kveðjum í dag? Þegar vér virðum fyrir oss dagfar og slarf séra Jólianns, sést hvað felst í þessu orði: „Prestana vil ég iklæða hjálpræði“. (Sálm. 132. 16.). Ég sá séra Jóliann ávallt þannig klæddan. Séra Jóhann var dómkirkjuprestur í 34 ár, prestur fjölmennasta safnaðar landsins. En fyrst og fremst var hann prestur, sendur af Drotni, hirðir eftir Guðs lijarta, þjónn Guðs, sem með fögnuði vikli vatn ausa úr lind- um hjálpræðisins. Störf hans í yfirlætisleysi og rósömu

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.