Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 34

Kirkjuritið - 01.01.1948, Page 34
32 KIRKJURITIÐ Jón Helgason segir.Virðist samvinna þeirra séra Helga og séra Valdimars hafa verið hin bezta í öllu tilliti. Gagn- rýndu þeir hreinskilnislega hvor annars verk, og það gerðu nefndarmenn yfirleitt. Út af þeirri gagnrýni séra Helga. að séra Valdimar hafi einkum valið til þýðingar skáldlega sálma og fáa bænarsálma, segir séra Valdimar honum i bréfi, að hann telji það kost á sálmum, að þeir séu skáld- legir, ef þeir séu jafnframt guðrækilegir, því að það sé kunnugt, „hvílík áhrif skáldskapurinn hafi til að hrífa hjartað fremur en það, sem hefir prósaiskan blæ, hversu gott sem það er að öðru leyti.“ Beztu sálmahöfundar hafi og allir mikið skáldlegt við sig, svo sem Kingo, Brorson, Ingemann og einkum Grundtvig, og af íslenzkum sálma- skáldum ekki sízt Hallgrímur Pétursson. En engir fari þó í þessu efni jafn langt og Davíð og spámennirnir ... ,,Og mér finnst það ekki allskostar rétt,“ segir séra Valdimar, „sem sjá má af litteratúrsögum, að sálmaskáld eru ekki tal- in með skáldum, heldur eingöngu með guðfræðingum. Mér finnst það líkt og þegar katólskir segja, að fuglaket sé ekki ket...." Þessi bréfkafli séra Valdimars sýnir glöggt, að hann telur skáldgáfuna til þess kjörna, að verja henni til lof- gjörðar og tilbeiðslu „í sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum,“ og metur það skáldlega í sálmakveðskapnum meir en séra Helgi virðist hafa gert, enda ber meira á skáldinu en guðfræðingnum í sálmum séra Valdimars. Til hins sama bendir og mat séra Valdimars á sálmum séra Matt- híasar, sem fyrr var að vikið, að hann metur mikils skáld- legt gildi sálmakveðskapar. Þeir séra Valdimar og séra Matthías hafa skrifazt á um sálmabókarstarfið meðan á því stóð, svo sem sjá má af bréfum séra Matthíasar (útg. 1935). Hrósar séra Matthías vini sínum fyrir ,, dáð hans og dugnað við sálmana,“ telur þá marga „afbragð annarra samtíðarsálma,“ þeir séu „andleg ljóðmæli, auðug, upprunaleg,“ en þó vanti marga eða flesta „fastan, subjectivan sem objectivan dogmatiskan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.