Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 2
H. f. Eimskipafélag Islands.
Aðalfundur.
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags Islands
verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í
Reykjavík, laugardaginn 10. júní 1950 og hefst kl.
iy2 e. h.
D AGSKR A:
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhögun-
inni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni,
og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekst-
ursreikninga til 31. desember 1949 og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svör-
um stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiftingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjóm félagsins, í stað
Þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu fé-
lagsins í Reykjavík, dagana 7. og 8. júní næstk. Menn
geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja
fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 27. febrúar 1950.
Stjórnin.