Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 61
TRÚIN Á DAUÐANN OG DJÖFULINN
129
tækifæri til að láta lífstíð vora — hina einu lífstíð, sem
vér eigum kost á — verða oss til þess, að vér reynumst
klæddir en ekki naktir á þeim degi (II. Kor. 5, 3) ...
En þegar það er sagt greinilega í Gal. 3, 27: Allir þér,
sem skírðir eruð til Krists, þér hafið íklæðzt Kristi“, þá
er sú íklæðing, sem postulinn hvetur kristna menn til ...
greinilega þannig, að vér eigum ávallt að verða það á ný,
sem vér erum þegar orðnir, það er að segja menn, sem
Jesús Kristur er þegar dáinn og upprisinn fyrir, sem þeg-
ar standa undir nafni hans, sem þegar eru upphafnir og
íaldir í persónu hans, sem þegar eiga hann að fulltrúa,
leiðtoga og Drottni fyrir þennan vonda dag. Vér megum
ekki og eigum ekki að gera neitt nýtt eða sérstakt, aðeins
endurtaka þetta með játningu munns vors og með trú
hjarta vors, og þannig staðfesta og endurnýja samfélag
vort við Krist, sem vér eignuðumst í skírninni . . . Þetta
er raunverulega allt, sem þarf að gerast“ (bls. 202—203).
Enn segir Barth, að þegar talað sé um hertygi hins
kristna manns, sé ekki um neina mannlega eiginleika né
rnöguleika að ræða. Allur slíkur vopnaburður sé einskis
virði. ,,Hið algera alvæpni, sem postulinn talar um, er ekki
til í vorri eign, og það er alls ekki á voru valdi. Hvatning-
in til að íklæðast alvæpni er hvorki hvatning til innri
djúphyggju, auðgunar, hreinsunar né betrunar, né held-
ur hvatning til neins konar ráðstafana né verka. Hvatn-
ingarorð postulans ber ekki að skilja í þeirri merkingu,
sem felst í boðskapnum um „siðferðilega hervæðingu", og
hefir borizt til vor þessi síðustu ár . . . Þegar um hertygi
vor í þessari síðustu og hættulegu úrslitabaráttu er að
ræða, þá látum oss varast allan sannleika, allt réttlæti,
allan boðskap, alla trú og allan kærleika, alla anda og öll
°rð, sem ekki eru sjálfur Guð og hans eiginleikar, hans
verk, hans englar og gjafir ... Það, sem mest veltur á,
er að hafa nógu lítið með sér af hertygjum úr sínum eig-
in herbúðum! Þau yrðu aðeins til óþæginda“ (bls. 195
—196).