Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 36
104
KIRKJURITIÐ
Jesú lítið sem ekkert; aðeins það, að hann hafi gert upp-
hlaup og verið krossfestur á dögum Pontíusar Pílatusar.
Mörg forn handrit eru til af sögu Jósefusar. Auk þeirra,
þar sem Jesú er aðeins minnzt, eru allmörg handritin,
sem minnast hans alls ekki. Þetta hefir vakið furðu margra
rannsóknarmanna. Menn hafa spurt: Er þetta af því, að
þessi fræðimaður hafi vitað, að Jesús var aðeins tilbúin
persóna, sem aldrei hafi verið til? Nýjustu rannsóknir
benda til hins gagnstæða. Nú er álitið, að Jósefus hafi
þvert á móti skrifað talsvert um Jesúm og þá hreyfingu,
sem hann vakti. En því fyrirfinnst það ekki í þeim hand-
ritum, sem liggja í söfnum, og menn eiga greiðastan að-
gang að? Skýring er líka til á því. Það, sem Jósefus skrif-
aði um Jesú, var fjandsamlegt í garð kristinna manna, séð
gegnum gleraugu rétttrúaðs Gyðings og til að lesast af
Rómverjum. Grunur leikur á, og jafnvel vissa, að þegar
kristnir klaustramenn fóru að afrita frumhandritin, slepptu
þeir þessum fjandsamlega kafla úr. Svetonius og Plinius
yngri geta Jesú báðir í sögum sínum.
Enn má geta þess, að til er sagnrit frá þessum dögum,
þó talið heldur yngra, sem sagnfræðingum kemur ekki
saman um, hvort sé síðari tíma tilbúningur eða ekki. Það
heitir Acta Pilati, og er nokkurskonar ævisaga Pílatusar,
og er fornt handrit þess geymt í skjalasafni páfastólsins
í Rómaborg. Þar er sagt greinilega frá öllum málarekstri
xmdir dauðadóm Jesú, og þar er að finna nákvæma lýs-
ingu á Jesú sjálfum.
Margir Biblíufræðingar halda því fram, að Acta
Pilati sé ábyggilegt heimildarrit, þó aðrir efi það. En af
þessu, sem hér hefir verið sagt, má sjá, að sú mótbára
gegn tilveru Jesú sem sannsögulegrar persónu, að hans
sé ekki getið í samtíma sagnritum, stendur völtum fótum.
Hans er getið, og ekki von til, að meira sé þar um hann
sagt.
Ég get farið fljótt yfir sögu, hvað 3. mótbáruna snert-
ir, að þó hann hefði verið til, hefði hann aldrei verið ann-