Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 82
150
KIRKJURITIÐ
ström í Vébjarga-stifti hefðu tekið sama viðhorf til málsins
og söfnuður hans, og söfnuður og biskup stæðu öndverðir gegn
þeirri boðun orðsins, sem presturinn áleit sjálfur að væri hrein,
lútersk kenning, eins og játningarrit kirkjunnar mæla fyrir,
þá krafðist hann þess, að kenning sín yrði rannsökuð af ábyrg-
um, kirkjulegum dómstóli, eða dómnefnd, svo að það yrði lýð-
um ljóst, hvort hann, sem prédikaði boðskap, sem bersýnilegt
væri að bæði söfnuður hans og hinn kirkjulegi yfirboðari væri
mótfallnir, ætti nokkurn rétt á því að vera prestur í dönsku
þjóðkirkjunni. Og séra Hjörtur færðist undan því að gegna
embætti sínu fyrr en þessari rannsókn væri lokið. En vegna
þess að kirkjumálaráðuneytið áleit, að slík rannsókn væri ekki
nauðsynleg, var séra Hirti tilkynnt, að enginn hefði kært hann
fyrir að kenna gegn játningarritum kirkjunnar, og að kirkju-
málaráðuneytið áliti, að ekki þyrfti að ganga í neinar graf-
götur um það, að séra Hjörtur væri í fullu samræmi við trúar-
játningu þjóðkirkjunnar. í krafti þessarar fullyrðingar lagði
svo kirkjumálaráðuneytið fast að séra Hirti að taka upp þráð-
inn, þar sem hann hafði sleppt honum, og taka aftur að
gegna embætti sínu. Séra Hjörtur lét samt engu um þokað
á kröfunni, að kenning sín yrði rannsökuð. En þegar ráðu-
neytið sá sér ekki fært að verða við þeirri kröfu, og eftir að
prestur hafði ekkert starfað í embættinu í heilt ár, var honum
vikið frá embætti. Fyrir milligöngu prestafélagsins danska,
var þessi embættisuppsögn tekin til meðferðar í prófastsrétti,
en hann lagði úrskurðarvaldið í hendur kirkjumálaráðuneyt-
inu. Var það úrskurður þess, að embættisuppsögnin skyldi vera
í fullu gildi, en prestur skyldi halda fullum eftirlaunum. Eftir
þessi málalok virðist það vera auðvelt fyrir prest að sækja
um annað prestsembætti í þjóðkirkjunni.
Mál þetta hefir einnig komið af stað áköfum umræðum.
Þarna standa alveg gerólík skilnings- og viðhorfs-sjónarmið
á trúarjátningunni og skyldunni og ábyrgðinni gagnvart henni
á öndverðum meiði. Séra Hjörtur er fulltrúi hinnar strang-
lútersku skoðunar á þessari skuldbindingu játningarinnar.
Gegn honum stendur hin yfirgripsmeiri, fjölþættari eða víð-
feðmari játningarskapgerð þjóðkirkjunnar, sem gegnsýrði
dönsku þjóðkirkjuna fyrir áhrif Grundtvigs, og hefir mótað
hina kirkjulegu löggjöf og kirkjulega umboðsstjórn hina síð-