Kirkjuritið - 01.02.1954, Side 37
SAMTÍNINGUR
83
°g þess vegna góð varzla fyrir nýgræðinginn, og ekkert fegrar
kirkjugarðinn meira en vel hirtar og skipulega settar trjá-
raðir umhverfis hann og um hann. Samvinna þessara tveggja
aðila — skógræktarinnar og kirkjugarðsstjórnarinnar á hverj-
Urn stað — er því bæði æskileg og nauðsynleg.
★
Eitt af því, sem setur hvað mestan svip á kirkjugarðinn, er
hliðið — sáluhliðið. Það þarf að vera úr traustu og varanlegu
eíni, málað og vel hirt að öðru leyti. Til gamans og fróðleiks
birtist hér mynd af einu sáluhliði. Það er á kirkjugarðinum á
Prestsbakka á Síðu, sem nýlega hefir verið girtur og stækk-
^ður. Hliðstólparnir eru steinsteyptir, ferkantaðir, um 40 cm.
a kant, húðaðir með kvarzi og silfurbergi, en krossarnir lagðir
hrafntinnu.
★
I Prestafélagsritinu VII. árg. 1925 er grein um kirkjugarða,
eftir Magnús Jónsson prófessor. Er hún reist á mörgum skýrsl-
Urn um kirkjugarða, sem hann hafði safnað frá prestum. í
utgerð þessari eru 3 uppdrættir af sáluhliði eftir Guðjón
Samúelsson húsameistara.
★
Um kirkjugarðana skal svo ekki f jölyrt frekar að sinni, nema
þetta: Vanhirtur kirkjugarður er hverju byggðarlagi til skamm-
ar- Vei hirtur og prýddur kirkjugarður er sókninni til sóma.
★
. »Eg er vísindamaður og háskólakennari í lífefnafræði. En
e£ er sannfærður um, að hvorki vísindin né háskólarnir geta
hjargað heiminum. Alheimurinn og mannlífið eru óskýrð undur.
En ég trúi því staðfastlega, að eina svarið sé að finna í óend-
anlegum kærleika og óendanlegum vísdómi — með öðrum orð-
um: ég er sannfærður um að Kristur gefur hið eina rétta svar.“
(James Boyd Allison).
★
Það eru fleiri höfuðborgir heldur en Reykjavík, sem fara
vaxandi, og það ört. En það gengur erfiðlega að fá prestunum