Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 4

Kirkjuritið - 01.01.1955, Síða 4
Fram í Jesú naíni. Guðspjall nýársdagsins öld af öld er stytzt allra guð- spjallanna — í dýpstum skilningi aðeins eitt orð: Jesús. f Jesú nafni kveðjum vér liðið ár með þökk til hans, er gaf. Og í Jesú nafni heilsum vér nýju og óskum hvert öði u gleðilegs árs. Vér skulum fara að dæmi sjómanna vorra kynslóð eftir kynslóð, nú er vér leggjum á djúpið. Þegar þeir settu fram skip sín, var það venja þeirra að signa sjálfa sig og skipið með krossmarki og segja: Fram í Jesú nafni. Þeir vildu ekki hætta sér út á hafið án þess að fela sig honum, sem megnar að kyrra vind og sjó, heldur báðu hann að blessa för sína. Þeir vissu það, að Guð í hjarta, Guð í stafni gefur fararheill. Vér skulum nú öll byrja nýja árið með þessari hugsun og bæn: Fram í Jesú nafni. Ýmsum kann að þykja djúpið fram undan geigvænlegt og veður válynd. Ekki aðeins veiku fari vorrar þjóðar, heldur öllu mannkyni. Ógurleg átök eiga sér stað milli austurs og vesturs, lýðræðis og einræðis. Heimsveldi rís gegn heimsveldi og ægir hvert öðru með skelfilegustu vopnum eyðingar og tortímingar. Kynþáttahatur og kúg- un ríkir. Þjóðir búa við áþján og eymd. Hundruð milljóna svelta eða lifa við kjör, sem ekki eru mannsæmandi. Félags- legt ranglæti ríkir, og þau öfl eru mikils ráðandi, sem fyrr eða síðar hleypa styrjöldum af stað. öldurót getur æst upp hafið frá einu heimsskauti til annars.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.