Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Blaðsíða 5

Kirkjuritið - 01.01.1955, Blaðsíða 5
FRAM í JESÚ NAFNI 3 Straumar hafsins og stormviðri berast einnig til vor. Island neytir ekki lengur fjarstöðu sinnar. Vér erum kom- in í nábýli við aðrar þjóðir og tekin að hugsa hnattrænt. Vegalengdir eru að verða undursamlega litlar, heimur dagleið hvar sem er. Jafnvel það, sem gerist lengst í burtu, er oss ekki lengur óviðkomandi, og stórviðburðir sögunnar geta gjörzt hér. Eitt og sama úthaf liggur fram- undan oss sem öðrum þjóðum. Og yfir grúfir sama dimma þokan. Er ekki sem vér heyrum andvarp berast yfir öldurnar, sárt og heitt, frá óteljandi hjörtum? Er ekki nefnt eitt nafn, hið sama sem vér vitum mennina ákalla oft í lífinu, er þeir ráðast í eitthvað mikið, eða ætla að ganga í gegn- um eitthvað alvarlegt og finna, að þeir þurfa æðri verndar og aðstoðar — nafnið Jesús. I Jesú nafni. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her. Á kirkjuþinginu mikla síðastliðið sumar í Evanston í Vesturheimi sameinuðust kirkjudeildir fjölmargra þjóða þrátt fyrir ólíkar stjórnmálaskoðanir um þetta nafn. Þegar þingið hófst, voru einkunnarorð þess: Vér ætlum að standa saman. Og þegar því lauk: Vér ætlum að vaxa saman. Kristur er von vor. Já, von mannkynsins byggist í raun og veru á honum einum. Þingið lýsir svo von sinni: „Vér þráum það, að von vor rætist. En vér bíðum þess með þolinmæði, þvi að vér vitum, að hún getur aldrei brugðizt. Það, sem þegar er orðið, líf Krists, dauði og upprisa fyrir oss, er oss sönnun þess, að öll fyrirheit hans muni rætast. Sigur hans mun verða augljós öllum og ríki hans koma með mætti og dýrð. Þetta er það, sem bíður veraldarinnar. Og þegar vér spyrjum: Hvað er fram undan oss? þá verður svarið: Það er hann, Kristur, lifandi drottinn. Vér eigum þegar óumræðilega dýrmæta reynslu. Vér sjáum í starfi Krists og kenningu Guðs ríki birtast með

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.