Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1955, Qupperneq 6

Kirkjuritið - 01.01.1955, Qupperneq 6
4 KIRKJURITIÐ mönnunum. Vér sjáum nýja menn verða til fyrir áhrif anda hans, nýtt tímabil hefjast í sögu mannkynsins. Að sönnu hefir vonzka og vantrú manna afskræmt verk Guðs. Og fyrir þvi megum vér vænta þess, að vér verðum að þola þjáningar. En ef vér gjörum það í trú á Guð, kærleika til allra manna og í von um sigur Krists, þá munum vér verða þátttakendur í þjáningum hans og krafti upprisu hans. Von vor verður að vera reist á Guði, sem kemur til vor í Kristi. Hún verður að líta til þess, sem hann hefir gjört, þess, sem hann gjörir nú, og þess, sem hann mun gjöra fyrir lýð sinn, er hann fullkomnar hjálpræðisverk sitt. Ríki Guðs á jörðu á fyrir kraft hans fullkomnun í vændum. Þá eignumst vér nýjan himin og nýja jörð, þar sem réttlætið mun búa. Það ríki verður kærleiksríki, þar sem allir verða eitt. Þar sem Kristur er von vor, þá býður hann oss einnig að elska alla, sem hann elskar. Hvenær ríkið kemur þannig, vitum vér ekki, en vér eigum að vaka í anda og vera hverja stund viðbúnir komu þess. Þótt vér höllum höfði að moldu, þá sakar það ekki hið minnsta. Kristur er von vor, hann er vort rétta líf.“ Þannig er yfirlýsing Evanstonþingsins, háleit og fögur. Er ekki unnt að segja skýrar: Fram í Jesú nafni. 1 þess- um anda mun Alkirkjuráðið, sem að henni stendur, heyja baráttu sína á komanda ári og árum við öfl heiðninnar og leitast við að safna öllum kristnum mönnum á jörðu undir merki sitt til eflingar friði og bræðralagi með mönn- unum. Og sú barátta mun verða sigursæl, ef verkin styðja, ef menn ekki aðeins hrópa herra, herra, heldur gjöra það, sem hann býður, ef kirkjan reynist albúin þess að fórna öllu fyrir trú sína. Þá munu skuggar haturs, tor- tryggni og styrjalda skríða í felur. Þá mun þokunni létta og fyrir handan hafið blána af sólbjartri, brosandi strönd Guðs ríkis. Kirkja vor Islendinga er nú ein þeirra kirkna, sem tekur

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.