Kirkjuritið - 01.01.1955, Side 41
ALTARISTÖFLUR
39
Sumir hreyfa ef til vill þeim andmælum, að með þessu kaupi
þeir köttinn í sekknum. Þeir vilja sjá myndina áður en þeir
kaupa, en með þessu móti verði þeir að semja við málarann
fyrirfram og taka það, sem hann býr til, hvort sem þeim
líkar betur eða verr. En þetta má ekki standa í vegi. Menn
verða að treysta listamanninum. Stundum getur málarinn gefið
kaupandanum hugmynd um það, hvemig altaristaflan verður.
Og allra bezt er, ef málarinn vill gera tilraunina án skuldbind-
ingar. Það er að vísu fómfýsi af hans hálfu, einkum ef hann
ferðast á staðinn til þess að kynnast verkefninu sem bezt. En
sú fómfýsi væri þó ekki óhugsandi, og í raun og veru ekki
nema þarfur eiginleiki hjá þeim, sem altaristöflur vill mála.
Allra bezt er án efa, að málarinn geti einnig lagt síðustu
hönd á verk sitt í sjálfri kirkjunni, þegar hann sér hana þar
í þeirri umgerð, sem hún fær. Ekkert ætti að vera of mikil
fyrirhöfn til þess, að yfir sjálfu altari kirkjunnar fari allt sem
bezt og hafi sem sterkust áhrif.
Magnús Jánsson.
*
Kórlög.
Nýlega er komið út sönglagasafn — 10 lög — með ofan-
greindu nafni, sungin og gefin út af kirkjukór Húsavíkur og
karlakórnum ,,Þrymi“, prentuð í Lithoprenti.
Það er ætíð mikið gleðiefni fyrir okkar söngelsku og söng-
gefnu þjóð, þegar nýtt sönglagahefti með úrvals lögum og
ágætum íslenzkum textum kemur á markaðinn, ekki sízt þar
eð hefti þetta er bæði fyrir blandaða kóra og karlakóra, og
kemur þar að auki út á bezta tíma ársins, að haustinu, í byrj-
un söngársins, þegar allir kórarnir em að velja sér lög til að
æfa að vetrinum. — Og svo kostar heftið aðeins kr. 25,00.
Heftið er mjög eigulegt, lögin vel valin og allur frágangur
framúrskarandi góður.
Það er merkilegt afrek, sem séra Friðrik A. Friðriksson