Kirkjuritið - 01.01.1955, Page 43
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða.
Prestafélag Vestfjarða hélt aðalfund sinn að Bíldudal 4.—6.
september 1954. í sambandi við fundinn var guðsþjónusta hald-
in í Bíldudalskirkju sunnudaginn 5. september, séra Grímur
Grímsson, prestur í Sauðlauksdal, prédikaði. Átta prestar voru
mættir á fundinum af félagssvæðinu, auk Ólafs Ólafssonar
kristniboða, sem sat fundinn. Hélt hann erindi með kvikmynda-
sýningu á Bíldudal og talaði um kristniboðið í Abessiníu. Þá
hélt séra Einar Sturlaugsson á Patreksfirði opinbert erindi
með skuggamyndum um íslendinga í Vesturheimi og vestur-
för sína, en hann fór vestur í boði Manitobaháskóla síðastliðið
sumar. Ferðaðist hann víða um íslendingabyggðir þar vestra
og hélt mörg erindi um ísland og íslenzk málefni á ferðalagi
sínu meðal íslendinga þar, einnig hélt hann nokkrar guðs-
þjónustur.
Aðalmál fundarins voru þessi: 1. Kirkjan og skólarnir, fram-
sögumaður séra Eiríkur J. Eiríksson, Núpi. 2. Kristniboðið,
framsögumaður Ólafur Ólafsson, kristniboði. 3. Endurreisn
Skálholts.
í sambandi við þessi aðalmál fundarins voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar:
1. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða bendir á þá alvarlegu
hættu, sem því er samfara, að uppvaxandi æskulýður fari á
mis við áhrif kristinnar trúar á aðalmótunarskeiði barnsins.
Þess vegna leggur fundurinn á það mikla áherzlu, að kristin-
dómsfræðsla í skólum landsins, allt frá fyrstu bekkjum barna-
skólanna, sé aukin, en með engu móti rýrð frá því, sem nú er.
2. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða leggur til, að kirkjan
í heild taki virkan þátt í kristniboði, meðal annars með því
að helga því einn ákveðinn dag kirkjuársins með fræðslu um
málið og almennri fjársöfnun, og vill fundurinn sérstaklega
benda á það starf, sem þegar er hafið í Konsó, og heitir á alla
íslendinga að styðja það eftir föngum.