Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 11
KÆRLEIKURINN BYGGIR UPP
201
Veizt, ef vin átt,
þanns vel trúir,
far þú að finna oft,
því að hrísi vex
og háu grasi
vegur, er vætki treður.
Þannig eiga þjóðirnar báðar að öðlast nánari kynni og dýpri
skilning hvor á annari og samlíf þeirra og samstarf eflast. Já,
með þeim hætti eiga allar Norðurlandaþjóðirnar að standa hlið
við hlið — varðveita ást og bræðralag um aldir.
Með það í huga hyllum vér vora góðu gesti, konung Dan-
merkur og drottningu og bræðraþjóðina dönsku.
Vér biðjum konung konunganna að vernda og blessa kon-
unginn og drottninguna, dætur þeirra, alla konungsættina og
ríki Danmerkur. Hann láti kærleik sinn lýsa þeim á komandi
fímum og vald kærleikans byggja upp bróðurlega vináttu og
samstarf Danmerkur og íslands, já, allra þjóða og kirkna Norð-
urlanda, að því marki, sem hann hefir sett oss af óendanlegri
speki sinni og náð.
Komi friður hans í Jesú nafni yfir vora jörð.
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON.