Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 12

Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 12
Varnir gegn glæpamyndaritum og glæpaheftum Á fundi menntamálaráðherra Norðurlanda 1. og 2. september s. 1. var m. a. tekið til meðferðar, hvernig vernda ætti börn og. unglinga fyrir siðspillandi áhrifum af lestri glæparita og glæpa- myndahefta. Framsögu um það efni hafði Þórður Eyjólfsson. hæstaréttardómari. Eftir ýtarlegar umræður var ákveðið að fela sérfróðum mönnum að athuga málefni þetta nánar, áður en sér- stakar ákvarðanir væru teknar. Framsöguræða Þórðar Eyjólfs- sonar, lítið eitt breytt, birtist hér á eftir samkvæmt tilmælum ritstjóra Kirkjuritsins. I. Á síðustu árum hefir það lögmál verið mjög til umræðu og athugunar í ýmsum löndum, hvernig unnt væri að vernda börn og unglinga fyrir óhollum áhrifum af ritum og myndasögum, sem aðallega hafa inni að halda frásagnir og lýsingar á ofbeldis- verkum, glæpum og öðru siðspillandi efni. Nokkur lönd, svo sem England, KÞnada og Austurríki, hafa þegar sett lög um bann við útgáfu og dreifingu á tilteknum tegundum glæparita, og víðar er í undirbúningi löggjöf, sem beinist í svipaða átt. Þessi hreyfing kann að nokkru leyti að stafa af því, hversu barna- vernd hefir aukizt á síðari árum. Einn liður í þeirri viðleitni hefir verið vernd barna og unglinga gegn óhollum áhrifum á sálarlíf þeirra. Af þeim sökum hefir t. d. víða um heim verið lögtekin opinber skoðun á kvikmyndum. Á því sviði gerði þörfin fyrir opinbert eftirlit fyrst vart við sig, með því að hin tæknilega full- komnun kvikmyndanna gefur möguleika til mjög sterkra áhrifa, ekki hvað sízt á börn og unglinga. Það, sem þó öðru framar hefir valdið því, að þetta efni hefir komizt svo mjög á dagskrá að undanförnu, er hin sívaxandi ut-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.