Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1956, Page 23

Kirkjuritið - 01.05.1956, Page 23
PISTLAR 213 ig í starfi kirkjunnar. Ég hefi oftar en einu sinni vikið að því, hver þörf er að leita nýrra leiða. Hins vegar hafa tengslin við fortíðina jafnan mikið gildi, og hæpið er að breyta siðum og venjum gamalla stofnana, nema brýna nauðsyn beri til, og víst að hið nýja sé til bóta. Kaþólska kirkjan er með réttu fastheldin á erfðasiði og erfða- venjur. Það er henni styrkur. Oss lúterskum mönnum hættir aft- ur á móti til að hringla með ýmsar kristnivenjur og kirkjusiði, og er það ekki alltaf til eflingar. Hér á landi hafa komið út tvær helgisiðabækur í minnum núlifandi manna (1910 og 1934). Báð- um má finna margt til gildis og sumt til foráttu. En það, sem hér um ræðir, er að það hefir viljað við brenna, að vér prestarnir vikjum á ýmsan hátt frá báðum. Einkum hin síðari leyfir oss að vísu að hafa óbundnar hendur um sumt — jafnvel mikilvæg atriði, sbr. greftrunina. Þetta hefir vafalaust ýtt undir ruglinginn. En svo bætist það hka við, að sakir breyttra þjóðfélagshátta og nýrra viðhorfa til kirkju og kristindóms eru söfnuðurnir að verða enn ruglaðri í dminu, hvað þetta snertir. Fáir leikmenn, einkum í þéttbýlinu, munu vera fróðir um helgisiðahald og kirkjusiði. Herra biskupinn skrifaði prestunum bréf í haust, þar sem hann mælist til að fylgt sé föstum reglum um ákveðin atriði, einkum varðandi guðsþjónustuna. Virðist að því hafi verið vel tekið, enda er oss öllum meinlaust að fylgja þeim óskum. En telja mætti æskilegt, að þessi mál yrðu athuguð nánar og á breið- ara grundvelli. Hví ekki að ræða þau betur á prestafundum, héraðsfundum og prestastefnunni? Líklegt, að það yrði til nokk- lIrs góðs. Piestslegt — þinglegt. Þórhallur biskup segir frá því, að þegar hann var að þýða Hirðisbréfin og lýsa skyldi því, hvernig biskup ætti að vera, hafi hann velt fyrir sér, hvaða orð hann mundi hafa um þá séra Sæmund í Hraungerði og séra Daníel á Hrafnakili. Svo þótti

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.