Kirkjuritið - 01.11.1958, Síða 25

Kirkjuritið - 01.11.1958, Síða 25
Kirkjuþáttur í útvarpinu. Á aðalfundi Kirkjukórasambandsins 22. júní tók ég eftir því, að einn fulltrúanna hafði árinu áður komið fram með tillögu um kirkjuþátt í útvarpinu. Hugmyndin með þeim þætti er sú, að efla sönglíf kirkju- kóranna, æfa gömul og sígild sálmalög, kynna ný lög og hvetja almenning til sálmasöngs. Mér þótti mjög vænt um að sjá þessa tillögu fram komna. Söngmálastjóri hefir unnið þrekvirki á sviði söngsins með öflugu starfi kirkjukóranna. Og með sérstökum þætti i út- varpinu fyrir sálmasöng, mundi útvarpið vinna göfugt, kær- komið og blessunarríkt starf fyrir þjóðina. En margt fleira kemur til greina í þessum þætti. Verk- efnin eru ótæmandi. T. d. væri gott að tala við og við um sjálfa messugjörðina, útskýra helgisiðina, svo að fólk viti, hvað þeir tákna og njóti betur guðsþjónustunnar, sýna fram á gildi kirkjugöngunnar, þá blessun, sem nútímamanninum er að þátttöku í hinni sameiginlegu guðsþjónustu safnaðar- ins, minnast á hlutverk starfsfólksins við kirkjurnar og hvern- ig leikmenn eigi að verja af tíma sínum, hæfileikum og fjár- munum til eflingar Guðsríkis á jörð, flytja innlendar og er- lendar fréttir af kirkjulegu starfi til uppörvunar og hvatn- ingar, ræða um það, sem efst er á baugi hverju sinni, fá stutt vekjandi ávörp, andlega söngva og tónlist, sem ekki er flutt í venjulegum guðsþjónustum. Þannig mætti lengi telja. Óþrjót- andi verkefni blasa við. U. þ. b. 15 mín. þáttur vikulega hefir brýnt erindi til þjóðarinnar og getur orðið lyftistöng fyrir kirkjulífið í heild. I því sambandi má benda á þann stuðning, sem þáttur Sigurðar Sigurðssonar er fyrir íþrótta- hreyfinguna. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að við fáum kirkjuþáttinn í dagskrá Ríkisútvarpsins. Pétur Sigurgeirsson.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.