Kirkjuritið - 01.04.1959, Blaðsíða 6
Séra Friðrik J. Raínar
vígslubiskup.
F. 14. febr. 1891 — D. 21. marz 1959.
[Rœöa Ásmundar Guðmundssonar í Akureyrarkirkju
viö útför hans.]
Vísa mér vegu þína, Drottinn,
kenn mér stigu þína.
Lát mig gamga í sannleika þínum og kenn mér,
því aö þú ert Guö hjálpræöis míns.
Sálm. 25, 4—5.
I.
Svo bað forðum sálmaskáldið
hebreska. Og sú er enn í dag bæn
kristins manns. Og mér virðast nú
þessi orð hljóma eins og sigur-
söngur páskanna yfir líkbörum séra
Friðriks Rafnars vígslubiskups, vin-
ar míns og starfsbróður, sem ég er
kominn hingað að kveðja minn-
ingar og þakkar orðum. Svarið við
þessari bæn var þátturinn að ofan,
sem hélt uppi lífi hans og starfi.
II.
Hann var alinn upp á góðu prests-
heimili, innrætt ást og virðing fyrir kirkju og kristindómi, og
dáði prestsstarf föður síns. Jafnframt hvíldi þar yfir mikil lífs-
alvara, er systkin hans urðu hvert af öðru að heyja hinzta stríð
við hvíta dauða. Hvorttveggja mótaði hann djúpt. Hann yfir-
gaf foreldrahúsin og tók að vinna fyrir sér í öðru landi. En
það veitti honum ekki fullnægju. Honum varð það ljóst smám
saman, að bezt mundi hann þjóna Guði sínum með því að gjör-
ast prestur. Og í þeim hug hóf hann menntaskólanám og
háskóla.
Guð vísaði honum vegu sína, kenndi honum stigu sína.