Kirkjuritið - 01.04.1959, Side 44

Kirkjuritið - 01.04.1959, Side 44
186 KIIIKJURITIÐ urinn var einnig meiri en venjulega. Drengjakór kirkjunnar söng í upphafi messunnar á undan inngangssálmi tvö vers við yndislega fallegt gamalt enskt lag. Það var dýrlegur söngur. Einnig söng kirkjukórinn eftir prédikun kóralverk eftir Bach: Ó, hve sælir eru hinir guðhræddu. En það, sem var mest hrífandi við þessa messu eins og allar aðrar sænskar messur, sem ég hefi verið við, var þátttaka safn- aðarins í bænum og söng, syndajátningunni og trúarjátning- unni. Allir taka þátt í bænunum, og hér um bil hver maður syngur. Það er líka mikil tilbreytni í söngnum. Sum versin syngja allir með orgelundirleik, sum versin syngja allir án org- els, og sum versin syngur kirkjukórinn einn. — Þetta lífgar messuna og gerir hana áhrifaríkari. Þegar sungnir eru lof- gerðarsálmar, eða ef lofgerð er í einhverju versi sálmsins, standa allir upp syngjandi, og mun ég ekki gleyma áhrifunum frá þeim syngjandi skara. Eftir messuna í St. Jakobskirkju óku þingfulltrúar og gestir til æskulýðshallarinnar að Graninge. Þarna eru æskulýðsþingin að jafnaði haldin, svo og ýmis önnur kirkjuleg mót og ráð- stefnur í Stokkhólmsbiskupsdæmi. — Þarna eru líka sumar- búðir kirkjulegu æskulýðsfélaganna svipað og t. d. Vatnaskógur er hér heima fyrir æskulýðsstarf K.F.U.M. Graninge er gömul bygging, mjög einkennileg og ævintýra- lega innréttuð. Var auðséð, að unga fólkið kunni þarna vel við sig, og hafði miklar mætur á þessu sérkennilega heimili sínu. Nú hófust hin raunverulegu þingstörf með sameiginlegri kaffidrykkju. Þingfulltrúar og gestir hjálpuðust að við veit- ingarnar, og svo var við allar máltíðir. Maturinn var afgreidd- ur við eldhúsdyr, og þjónaði hver sjálfum sér til borðs. Auð- veldaði þetta mjög heimilisstörfin og sparaði vinnukraft. Þann- ig ætti að haga veitingum á öllum æskulýðsmótum, enda er það e. t. v. gert einnig hér heima. Aðalmál þingsins auk venjulegra þingstarfa var Biblían, gildi hennar í lífi kirkjunnar í dag og gildi hennar fyrir hinn kristna æskulýð. — Voru flutt tvö framsöguerindi um þetta efni. Fyrra erindið flutti dr. theol. Áke V. Ström, og nefndist það: Vitnis- burður Biblíunnar um sjálfa sig. Erindið var hið merkasta og háguðfræðilegt. Vakti það furðu mína, hve unga fólkið hlust- aði með mikilli athygli, og hugsaði ég með mér, að tæpast

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.