Kirkjuritið - 01.04.1959, Page 45

Kirkjuritið - 01.04.1959, Page 45
KIRKJURITIÐ 187 hefði ungt fólk hér heima notið svo fræðilegs erindis eins og þetta æskufólk virtist gera. — Síðara erindið flutti Kommini- ster G. Niemeyer, og nefndist það: Biblían á nútíma sænsku. Fjallaði það um vandamál, sem okkur kann að þykja undar- legt, þ. e. erfiðleika sænskrar æsku á því að skilja málið á sænsku Biblíunni. Hún er þó ekki á ýkjagömlu máli. Það er endurskoðuð og breytt þýðing frá 1917. Eigi að síður hefir málið tekið svo miklum stakkaskiptum frá þeim tíma, að ungt fólk skilur alls ekki mál þessarar þýðingar á mörgum veiga- miklum stöðum. Skildist mér, að meginbreyting málsins væri sú, að tekin hefðu verið upp fjölmörg nýyrði úr erlendum mál- um í seinni tíð, en mörg gamalsænsk og norræn hugtök væru óðum að týnast og gleymast. — Þótti ræðumanni, svo og mörg- um, sem til máls tóku síðar, einsýnt, að gefa yrði Biblíuna út á daglegu máli unga fólksins, ef takast ætti að láta það lesa hana sér til gagns, og ef takast mætti yfir höfuð að fá það til að lesa hana. Að framsöguerindum loknum var þingfulltrúum skipt niður í hópa. Fékk hver hópur sérstakan kafla úr Nýja testament- inu, til þess að þýða á nútíma-sænsku, eða „barnamál", eins og sumir prestarnir orðuðu það. Enda voru þeir ekki allir jafn- hrifnir af þessari nýbreytni, og kvað einn þeirra upp úr með það, að sitt álit væri, að ekki bæri að þýða Biblíuna á mál æskunnar í dag, heldur að kenna henni mál Biblíunnar, þ. e. góða og gilda sænsku. Okkur hjónunum var skipað í hóp með prestunum og nokkr- um öðrum gestum þingsins. Fékk sá flokkur það viðfangsefni að snúa 28. kapítula Postulasögunnar á sænskt „barnamál" í tilraunaskyni. Við höfðum að vísu ekki ýkja mikinn áhuga á þessu, því að allmikið skorti á, að sænskukunnáttan hrykki til að endur- bæta sænska tungu, eða breyta henni eftir kröfum æskufólks- ins. Við kunnum hins vegar vel við okkur í félagsskapnum, og voru margar skemmtilegar athugasemdir gerðar við þær nýju niáltillögur, sem fram komu. Ljóst var einnig, að þetta var nijög vel fallið til að vekja áhuga á Biblíulestri. Það sást bezt daginn eftir, þegar við fengum að heyra niðurstöður af þýð- ingu sumra hópanna. Úr því varð eins konar helgileikur. Skiptu unglingarnir með sér hlutverkum í ritningarköflum, þar sem

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.