Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1969, Page 14

Kirkjuritið - 01.10.1969, Page 14
Séra Jón Kr. Isfeld: Séra Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, Ási við Sólvallagötu (LíkrœSan) NáS sé meS ySur og friSur frá Drottni vorum og frelsara Jesu Kristi. Það voru sannarlega mörg ritningarorð, sem leituðu á luiga minn, þegar ég fór að íliuga, liver skyldi vera bakgrunnur og yfirskrift þessarar kveðjustundar. Ég staðnæmdist við þessi orð: „Jesú sagði: Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld“. Ég staðnæmdist einmitt við þessi orð, því að ég tel, að þau liafi verið aðal inntak boðskapar míns kæra vinar, séra Sigurbjörns, ekki aðeins, þegar liann flutti sorgmæddum huggun, hehlur einnigi þegar liann flutti ósærðum boðskap fagnaðaretrindisins. Þann- ig boðaði liann Krist með útbreiddan kærleiksfaðm sinn. Á fótstalli einnar fegurstu og jafnframt frægustu högg' myndar veraldarinnar standa þessi orð, meitluð í marmarann: „KOMIÐ TIL MlN“. Þetta listaverk táknar Krist, þar sein liann breiðir út faðminn og býður öllum mönnum: „KomiS til mín allir“. Þetta dásamlega listaverk, meitlað í kaldan steininm hefir lirifið hugi tugþúsundanna, og ekki aðeins gefið þeim íhugunarefni, lieldur einnig huggunarefni. Það liefir vakið

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.