Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1969, Side 46

Kirkjuritið - 01.10.1969, Side 46
380 KIRKJURITIÐ Stjórnendur fjölmiö'lunartækja voru minntir á þau iniklu áhrif, seni þau sem slík liafa á mótun hinna ungu og þá ábyrgð er því fylgir, og aó efnis* val þurfi að vanda sem mest. Fundurinn áleit nauðsynlegt vera, aö þjóð, sem kennir sig við kristna menningu og byggir á lífssannindum kristindómsins, liafi kristinfræði 1 öllum hekkjuin framhaldsskólanna sem skyldunám allt að stúdentsprófi svo^ sem reglugerð mælir fyrir um. Ánægja var látin í ljós með þá nýhreytni í sumarhúðunum að efna til sumardvalar fyrir aldrað fólk. Vakin var athygli á húsmæðraskólanum á Löngumýri í Skagafirði og æskulýðsfélagar minntir á að kynna sér starf* semi skólans. Þá voru prestar hvattir til að hafa oftar altarisgöngur. Guðsþjónustur voru í fimm kirkjum, Húsavík, Einarsstöðum, Ljósavatni? Reykjahlíð og Skútustöðum. Frá hiskupi íslands herra Sigurliirni Einars- syni hárust heillakveðjur, og risu fundarmenn úr sæti í virðingar- og þakkarskyni og biskupi þökkuð störf hans og allur stuðningur við Æ. S. K. í Hólastifti. Einnig hárust fundinum kveðjur frá Samvinnutryggingum, og öðruiu aðilum, er sýndu Sambandinu vinarhug sinn við þetta tækifærið. Sérstakar þakkir voru færðar prófastshjónunum að Grenjaðarstað, séra Sigurði Guð* mundssyni og Aðalbjörgu Halldórsdóttur fyrir mikið og fórnfúst starf er þau liafa unnið á liðnum árum fyrir sumarbúðirnar, svo og inóttöku fundargesta. Voru allir mjög hrifnir af sumarbúðunum og dvölin þar hiu ánægjulegasta. Formaður Æ. S. K. s.l. 10 ár séra Pétur Sigurgeirsson haðst undan endurkosningu. Voru lionum þökkuð mikilvæg störf hans og farsæl forystR á hinu liðna starfstímahili. Þessir voru kosnir í stjórn Æ. S. K. til tveggja næstu ára: Form. Séra Sigurður Guðmundsson, séra Þórir StephenseiU séra Birgir Snæhjörnsson, Ingihjörg Siglaugsdóttir og Pétur Þórarinsson- I varastjórn séra Bolli Gústavsson séra Þórhallur Höskuldsson og Guð* inundur Garðar Arthursson. Æ. S. K. í Hólastifti var stofnað til þess að vekja æskuna til trúar á Drottin vorn og Frelsara Jesúm Krist, og hvetja hana til þjónustu í kirkiu hans. Að þessu marki liefir sambandið unnið. Það hefir átt stuðning yng«'í sem eldri, áhuga og fórnfýsi. Þakkir voru fluttar og nafn Drottins lofað- (Frétt frá Æ. S. K. í Hólastifti)• ERLENDAR FRÉTTlR Nýr hershöfSingi hefur tekið við stjórn Hjálpræðishersins, sá níuiuli 1 röðinni, Fyrstur var stofnandinn, William Booth. Sá áttundi hét Frederick Coutts og lét af stöifum sakir aldurs. Erick Wickberg, sem nú er seztur að völdum, er Svíi að ætt og uppruiia, en hlaut þjálfun í Englandi og hóf starf í alþjóðadeildinni í Lundúnun1

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.