Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1969, Qupperneq 32

Kirkjuritið - 01.10.1969, Qupperneq 32
KIRKJURITIÐ 36 6 Enginn getur sagt um það, hve lengi hinir hvítu drottnarar geta fótumtroðið blökkumennina og setið einir að auðlinduH' um, með því að beita viðurstyggilegum bolabrögðum. Því miður er lítil von til að kristnar þjóðir almennt geri annað en klóra yfir meðsekt sína með orðfögrum mótmæluni, sem enginn lekur alvarlega. En gera verður því skóna að sa dagur renni, þegar rétllætið vellur fram, sem óstöðvandi flóð. Trúin og sagan benda í þá áttina. Hryggilcg smán Þrjátíu ára stríðið hefur löngum verið mönnum bneykslunar- bella. En svo ólánlega vill til að við höfum spegilmynd þess fyrir augunum. Styrjaldarólgan í Irlandi er smámynd af sanis konar róti. Freyðandi trúardeilur á yfirborðinu, en undiraldan stjórnmálalegs eðlis. Það er ekki nýtt að kristnir menn beri vopn bver á annan- Fylgd okkar við friðarhöfðingjann er meiri í orði en á borði. En okkur blöskrar að mótmælendur í Norður-lrlandi skuh bafa látið sér til liugar koma að liafa í frammi slíkt ranglaet1 og ójöfnuð við kaþólska landa sína og þeir eru nú berir að- Þarna er þó aðeins smá þjóðarbrot á litlum landsskika- Ætti því að vera um einlægan samliug að ræða í stað návíga og áþjánar. Kristin siðmenning verður þetta ástand ekki nefnt. Ný dagsbrún? Þrjú undanfarandi dæmi eru tekin því til skýringar að tafb staða kristninnar er fremur veik í veröldinni. Hún sækir ekki á til jafns við andtrúar og ókynnisstefnur, dregst meira að segja aftur úr miðað við stöku trúarbrögð. Þetta er órækt ai nýjustu rannsóknum. Heimsstyrjaldirnar liafa eins og nærri lætur ekki pliEr* akur bræðralagsins né borið með sér fræ friðarins. Oslitin og miskunnarlaus barátta um auðlindirnar og vígbúnaðarkapp" lilaup stórveldanna bæta ekki fyrir kristninni. Því að „kristmr menn“ eru þar víðast og mest að verki. Óvildin í garð kristninnar er henni samt háskaminni en tóm- læti fjöldans um kristni og kirkju. Um það er alls staðai

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.