Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1969, Page 18

Kirkjuritið - 01.10.1969, Page 18
352 KIRKJURITIÐ og ræðinn. Mér fannst oft, að liann minna niig á andlegan ,,pater“ (föður) minn, en ekki aðeins vígslubróður, því að svo traustvekjandi var framkoma hans og viðkynning. Hann var oft einarður í viðræðum, en jafnan livetjandi og hughreyst- andi. Það þurfti ekki að liafa löng kynui við hann til þess aö komast að raun um, að liann var andlegt karlmenni. Hann var einstaklega traustur í viðskiptum og vildi þar aðeins lieiðar- leika, en engin undanbrögð. Stefnufastur var hann og laus við alla mærð. — Um einkamál sín ræddi liann venjulega lítið, og þá oftast aðallega til þess að nefna dæmi einhverju til sönnunar. Skemmtinn var hann og innilega snjall að segja smáskrýtlur, sem aldrei misstu marks. Hann átti mikið af góðlátlegri glettm, sem aldrei var neinum til meins, Iieldur eingöngu til gamans- Það var svo einkennandi fyrir hann, livað hann átti auðvelt með að gleðjast með glöðum og liugga sorgmædda, hrellda og hrjáða. Hann var alltaf reiðubúinn að ganga út af veginum og gera að sárum náunga sinna. — Þetta er ekki sagt til þess aö fylla upp í eyðu í minningarræðu, lieldur staðreynd, sem vinu' hans þekkja bezt. — Hér má geta þess, að á erfiðleikastunduin Rej'kvíkinga, þegar hér geysaði Iiin svokallaða „spanska veiki , 1918, var stofnuð nefnd manna lil hjálpar hér í borginni- Þegar starfi nefndarinnar sem slíkrar var lokið, stofnuðu nefndarmenn með sér félag, sem þeir kölluðu „Samverjann (þ. e. ætlað sama markmið og hinn miskunnsami Samverj1 setti í dæmisögu Krists). Formaður þeirra samtaka var sera Sigurbjörn um skeið. Þessi samtök áttu stærsta þáttinn í þvl’ að stofnað var Elli- og hjúkrunarheimilið Grund á árinu 1922. Frá upphafi voru nefndarmennirnir 5. Nú eru þeir allir komnir til liinztu hvíldar og er séra Sigurbjörn þeirra síðastiu'- En liin gagnmerka stofnun og dótturfyrirtæki hennar, As 1 Hveragerði, standa sem óbrotgjarn minnisvarði um „Saxn- verjana“ 5. Ég sagði áðan, að stærsta skrefið á starfsferli sínum Iiefö1 séra Sigurbjörn stigið, þegar liann tók prestsvígsluna. En e& tel, að stærsta skrefið á lífsferli sínum hafi liann tekið, þeg111 hann 27. júní 1902, gekk að eiga Guðrúnu Lárusdóttur fr1" kirkjuprests í Reykjavík, Halldórssonar. Þar með hafði hanu fengið þann lífsförunaut, sem fús var til að fórna kröftum sin-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.