Kirkjuritið - 01.10.1969, Side 27
KIRKJURITIÐ
361
Prestsstarfið líkist verki sáðmannsins. Vettvangurinn er gleði
°g sorg mannlegra tilfinninga, því að forðum var sagt: Grát-
andi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma
Þeir aftur og bera kornbundin Iieim. Sálusorgari veit, að liann
er ekki annað en þjónn treystandi á fyrirlieitið, að mátturinn
iullkomnast í veikleikanum.
Pað var mér styrkur að finna forsjón Guðs í atburðanna rás.
ég liefi átt miklu láni að fagna um dagana. Ég veit, að lög-
Jnálið bak við lífsins gátu er þetta: Leitið fyrst Guðs ríkis
°K bans réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.
(Mattli. 6.33.).
Pann 3. ágúst 1948, á afmælisdegi föður míns, kvæntist ég
eiginkonu minni, Sólveigu Asgeirsdóttur, Ásgeirssonar kaup-
JJJanns og Kristínar Matthíasdóttur Eggertssonar, prests í
^rímsey, er þjónaði þar, lengst allra presta í 42 ár. Með eigin-
^onu minni eignaðist ég vissulega þá mestu liamingju, sem mér
hefir lilotnazt. B örn okkar eru fjögur, öll í foreldrabúsum, en
tvö þeirra eru erlendis um þessar mundir. Son okkar Pétur,
°g nasst elztu dótturina, Kristínu, höfum við bjá okkur í dag,
ejj Guðrún er skiptinemi kirkjunnar í Bandaríkjunum. Yngsta
dóttirin, Sólveig, er í Kaupmannahöfn starfandi bjá líknar-
stofmm dönsku kirkjunnar (Det Samvirkede Meningheds-
l'^eje). Eiginkona mín befur búið okkur fagurt lieimili. Hlut-
'erk liúsfreyjunnar á prestsheimilum er eitt það þýðingar-
JJJesta í lífi og starfi prestsins.
Við höfum átt mikilli vinsemd að mæta hjá sóknarfólkinu
°S fengið að reyna, að sönn vinátta er dýrmæt, og er mikið
hakkarefni. Starfsbróður mínum séra Birgi Snæbjörnssyni
lJakka ég ágætt samstarf, svo og öðru starfsfólki við kirkjuna
lJar sem ég þjóna.
Áú eru senn 10 ár síðan Æ. S. K. í Hólastifti var stofnað.
ar á ég mörgum mikið að þakka og sérstaklega stjórnarsam-
starfið. Ég befi óbilandi trú á hlutverk kirkjunnar með þjóð-
*1JlJJ, að Jesús Kristur gegnsýri þjóðlífið, göfgi það og blessi
1 nútíð og framtíð.
Að lokum Jiakka ég Guði óendanlega miskunn lians og for-
sjá. Ég bið liann um styrk og handleiðslu, jiegar biskup lands-
herra Sigurbjörn Einarsson ætlar nú að vígja mig til
'Jgslubiskups í liinu forna Hólastifti á þessum heilaga stað.