Kirkjuritið - 01.06.1973, Blaðsíða 10
Horft að altari í Kirkjuvogskirkju.
GYLLTAR STJÖRNUR OG PÍLÁRAR
í árslok 1972 var endurbótum að fullu
lokið. Opnaði biskup kirkjuna við há-
tíðlega athöfn þann 10. des s. I. Hafði
þá verið steyptur nýr grunnur undir
hana, þak endurnýjað og gólf og
máttarviðir hið sama að miklu leyti,
svo sem áður gat. Þá voru og innviðir
allir nýir utan lofthvelfing.
Þegar horft er innar eftir skipi kirkj-
unnar, er hún öll hin þekkilegasta og
prúðasta. Eiga þar mikinn hlut að
máli tveir fyrrnefndra húsfriðunar-
manna. Þorsteinn Gunnarsson, arki-
tekt og leikari, mun hafa teiknað allar
breytingar og endurbœtur innan dyra.
Mun þó svo að skilja, að stefnt hafi
verið að þv! að fœra sem flest í upp-
haflegt horf, en nokkur röskun hafði
á því orðið. Hörður Ágústsson, list-
málari og skólastjóri, réð hins vegar
litum öllum. Eru nú spjöldin í hvelf-
ingunni máluð mildum, bláum lit og
gylltar stjörnur á. Listar eru gráir.
Veggir eru hvítir niður fyrir gluggci/
síðan mosagrœnir — og bekkir hið
sama. Þeir eru nýir að gerð, þœgilegir
og rúmir, þótt trébekkir séu. Skilvegg-
ur, hálfhár, er framan við fremstu
bekki og efst á honum grindverk með
gylltum pílárum. Jósef segir, að píl*
áraverk þetta sé ekki allskostar eins
og hið upphaflega. Eins er svo að
skilja, aö gluggar séu nokkuð breyttir.
Predikunarstóll er einnig mosagrœnn,
Ijósari þó, en bekkir.
Þannig er þá Hafnakirkju bjarga^
frá eyðileggingu um sinn og húnvarð-
veitt sem nœst í upphaflegri mynd.
Aðspurður segir Jósef, að aIIflestit
sóknarmenn séu nú ánœgðir með,
hversu til hafi tekizt. Sú hafi orðið
raunin, þegar á reyndi, að fólk vild'
varðveifa kirkjuna. Sjálfur virðist hann
harla glaður yfir nýjum búningi henn-
ar og kveðst þó í öndverðu hafa hall-
azt að byggingu nýrrar kirkju. Aðvisu
hefur hann eitthvað heyrt utan að ser
um svarta sál sóknarnefndarinnar, 'j'
vœntanlega einkum vegna litar kirki'
unnar, þótf fleira kunni 1 að blandast'
en það finnst á, að hann telur slí^
ekki af illum huga sprottið. Miklu
fremur virðist þessi útmálun sóknör'
nefndarinnar eitthvað hýrga þá sér°
Jón.
Kostnaðarsöm hefur kirkjuviðg©r^’
in að sjálfsögðu orðið. Mun ekki fjarr'
sanni, að hálf þriðja milljón íslenzkr0
króna hafi í hana farið. Þar af hefur
104