Kirkjuritið - 01.06.1973, Side 38

Kirkjuritið - 01.06.1973, Side 38
andi manneskja og hefi staðið í bóða fœtur gegnum þykkt og þunnt. Nú verðurðu að taka við mér aftur, ann- ars er ég búinn að vera." Er það kannski svona, sem týndi sonurinn ávarpar föður sinn, þegar þeir hitt- ast í túnfœtinum? Þeirrar skoðunar er franski rithöf- undurinn André Gide (og margir hugsuðir hafa tekið undir álit hans). Gide býr til nýjan endi á dcemisög- una, þar sem týndi sonurinn rœður bróður sínum að fara burt til fjarlœga landsins, svo að hann geti einnig „vaxið upp" og þroskazt. Gide er í rauninni þeirrar skoðunar, að það hafi gert piltinum gott að týnast um hríð. Honum varð það til gœfu að syndga. Maður verður að ganga í gegn um svona nokkuð. Og maður verður að hafa hugrekki til þess að hafna Guði, svo að hann taki við manni aftur. Nú hefur sonurinn teyg- að til botns þann bikar lifsins, sem er í senn sœtur og beizkur. En dœmisaga Jesú nefnir ekkert af þessu á nafn. Heimkomni sonurinn segir einfaldlega: „Faðir, ég hefi syndgað móti himninum og fyrir þér. Ég hefi alls enga kröfu á hendur þér." Það er alls ekki að þakka auknum þroska sonarins, að hann fékk á ný inni hjá föður sínum. Það er að þakka kœrleika Guðs, sem er og verður kraftaverk. Manneskjan getur einskis krafizt af Guði. Það er í senn undur- samlegur og náðugur leyndardómur kœrleika Guðs, að hann leitar hins týnda og að það er gleði í himnun- um yfir syndara, sem iðrast. En nú stöndum við frammi fyrir spurningu að síðustu: Hvar birtist Jes- ús Kristur í þessari sögu, eða, finnist hans engin merki, hvar eigum við þó að koma honum fyrir? Eða er faðir- inn ekki svo góðhjartaður og miskun- samur, að hann sé fús að fyrirgefö milliliðalaust? Hvers vegna þörfn- umst við krossins, meðalgangara, eðö í einu orði sagt: Kristsfrœðinnar? Er ekki einhver guðdómlegur einfaldleiki yfir dœmisögunni allri? Er hér nokkur Kristur? Við erum ekki fyrst til að spyrjö þessarar spurningar. Eitt er alveg Ijóst. Týndi sonurinn getur ekki snúið heim og fengið fyrir- gefningu, nema vegna þess að himn- arnir standa opnir og Faðirinn er fu5 að fyrirgefa honum. Að öðrum kosti hefði sonurinn orðið að bíta á jaxlinn og sœtta sig við orðinn hlut. En sorg- in í hjartanu hefði ekki sefazt né kvöl- irnar inni fyrir linazt. Samvizkan hefði haldið áfram að áklaga hann innön undir skelinni. En Jesús vill sýna okkur, að svon° er því ekki farið, heldur fellur okkur í skaut alger frelsun. „Þú hefur rétt fyrir þér,"segir hann, „glataður ertu< byggirðu á sjálfum þér einvörðungu- Hver er sá, sem ekki hefur logi^' framið morð eða drýgf hór? Og hver er sá, að í hjarta hans blundi hvötin til þess að drýgja þessar synö' ir? Þú gjörir rétt, þegar þú gefur þ'9 fram við Guð í fullkominni uppgi°'' En nú hefur nokkuð gerzt, sem sner^'r ekkert það, sem þú gjörir eða lceNr ógert. Þér er fœrð gjöf. Nú er Guð5 ríkið á meðal yðar, hús Föðurins op' upp á gátt. Og, ég er dyrnar, ég e vegurinn, ég er lífið, ég er hönd F° urins. Sá, sem hefur séð mig, hefuí 132

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.