Kirkjuritið - 01.06.1973, Side 84

Kirkjuritið - 01.06.1973, Side 84
sem skrifað stendur hjá Jesaja spá- manni og Jeremía, að foreidrarnir eti sín eigin börn. Fara þeir að eins og Manasse konungur, sem lét fórna barni sínu til hjáguðsins Móloks og brenna. Hvað er það annað en að fórna sínu eigin barni til hjáguðsins og brenna, þegar foreldrarnir ala börn sín upp fremur heiminum til geðs en Guði og láta þau fara svo fram, að þau brenna af lystisemdum heimsins, elsku, gleði, eignum og heiðri, en elskan til Guðs og hans heiðurs og löngunin eftir hinum eilífu gœðum slokknar? Háskalegt er að vera faðir og móð- ir, þegar hold og blóð eru látin ein- ráð. Því að sannarlega er það komið undir þessu boðorði að öllu leyti, að hin fyrstu þrjú og hin seinni sex verði þekkt og haldin, því að foreldrunum er boðið að kenna börnunum slíkt, eins og stendur I Sálmi 78: „Fastlega hefur hann boðið foreldrum vorum að kunngjöra börnum sínum boðorð Guðs. Þvi að afkomendur þeirra skulu þekkja þau og kunngjöra aftur börn- um og barnabörnum." Því hefur Guð og boðið að heiðra foreldrana, þ. e. óttast þau og elska, því að hin fyrr- nefnda elska er án ótta. Er hún því fremur vanheiðrun en heiðrun. Sjáið nú, hvort ekki hafi hver maður nœg góð verk að vinna, hvort sem er faðir eða barn. En blindir látum vér það eiga sig og leitum auk þess margra annarra verka, sem eru ekki boðin. 4. Séu nú foreldrarnir svo óvitrir, að þeir ali börn sín upp á veraldar- vísu, eiga börnin alls ekki að hlýða þeim, því að hœrra ber að meta Guð en foreldrana samkvœmt þrem fyrstu boðorðunum. En það kalla ég að ala upp á veraldarvísu, þegar þau kenna börnunum ekki að leita annars en lystisemda, heiðurs og eigna eða valda af þessum heimi. Nauðsynlegt er og engin synd að bera viðeigandi prýði og leita heiðarlegrar afkomu. Barn verður þó að hneigjast að þvi í hjartanu eða hneigja hjartað að þvl að leiðast það, að þetta auma líf ó jörðu getur ekki byrjað vel eða farið vel án þess, að því fylgi meira skart og eignir en þörf er á til að skýla lík- amanum, verjast kuldanum og ncer- ast. Það verður því gegn vilja sínum að fara að vilja heimsins og taka þátt í heimskunni og þola þetta böl, forðast það, sem verra er, vegna hins betra. Þannig bar Ester drottning hina konunglegu kórónu sína og mœlti þ° við Guð: ,,Þú veizt, að djásnið á höfð' minu hefur aldrei geðjast mér enn, og ég met það sem lélegan tötur. Ég ber það aldrei, þegar ég er ein, heldat aðeins þegar ég verð og á að vera meðal fólks." Hjarta, sem þannig e[ gjört, ber að skaðlausu, því að þa^ ber það og ber þó ekki, dansar °9 dansar þó ekki, lifir í nœgtum og Þ° án nœgta. Það eru hinar huldu sálir< leyndu brúðir Krists, en þcer eru sjaló' gœfar, því að erfitt er að hafa eng°r mœtur á skarti og skrauti. Þannig bör heilög Cecilia gullsaumuð klœði a boði foreldra sinna, en hárskyrtu inn an klceða á líkama sínum. Nú segja margir: „Já, hvernig 903*1 ég komið barni mínu í hóp manna °ý gift það að heiman með sóma? verð að láta slíkt skart í té." Seg rTier' eru þetta ekki orð þess hjarta, sen1 efast um Guð og treystir meir á e'9 178

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.