Fanney - 01.12.1905, Síða 41

Fanney - 01.12.1905, Síða 41
87 F A N N E Y irvv '*VY\ Wf* inn á niér við ilininn af heitu kleinunum, en ég þorði ekki að biðja Boggu um eina, þorði yiir höi'uð ekki að láta sjá niig. Svoiia smáfierðisl ég alla leið frant í bæjardyr. Þar lagði ljós- glætu ofan uin uppgönguna á loftinu. Þar nppi Sat Siggi á kistu og var að skafa af sér skegghj'unginn. Eg man ekki hvort ég beinlínis óskaði þess, að hann skæri sig ofurlítið, en ég átli fyllilega von á því, og þess vegna stóð ég fyrir neðan slig- ann í myrkrinu og góndi upp til lians. En ég hafði engán frið lil að bíða eftir því. Þá var kallað uin allan bæinn : »Jónki! Jónki! Nonni! — Hvaö er orðið af stráknum ?« Bogga systir mín var sem sé búin að steikja klein- urnar og nú átti hún að fara að þvo mér. Eg vissi nú á hverju ég átli von fyrir það, að finnast þarna berfætlur frammi í bæjardyruin í staðinn fyrir að sitja á fótum mínum inni i rúms- horni. Samt tók ég undir. Nú kom það versta af öllu. Bogga lór með mig inn i fjós, klæddi mig úr hverri spjör og þvoði mér um allan skrokkinn uþp úr stórum þvottabala og lét inig standa niðri í lionum á meðan. Eg var í vondu skapi. Mér lánst það ineira en meðal- móðgun, að fara svona með mig og það i fjósinu, aftan við kýrnar. ()g hvað hlutu þær að hugsa? Eg, sem hafði verið svo herralegur yíir þeim, þegar ég var að reka þær sumarið áður. Eins og ég hefði ekki l'engið nóg bað í lindinni um daginn. Að Þessum stórþvotti loknum bar hún mig í fanginu inn í bað- stofu, inn að rúminu sínu, og fór að kemba mig og greiða og færa mig í sparifötin. Sjálf var hún enn þá ekki l’arin að búa sig. En þegar hún lank upp saumakassanum sínum, til að ná í eitthvað, sem hana vant- aði, þá rak bana heldur en ekki í roga-stanz. Undir Iokinn á saumakassanum lá ofurlítill bögg- ull innan í pappír. Hún lletti utan al' því og tók þar innan úr þrjá smáhluti, sem vandlega voru innvafðir liver fyrir sig. Það var skúfhólkur og brjóstnál, livorttveggja úr sill'ri, og — gnll- hringur. Bogga starði fyrst um stund alveg forviða á þessa skrautgripi og ég borfði á hana slórmn augum. Svo færðist ánægjubros ytir alt andlitið á henni. Hún vafði gripina aftur innan í bréíið og stakk þeim ofan i kassann. »Hver befir látið þetta í kass- ann þinn, Bogga?« spurði ég. »Jólasveinninn«,— sagði hún með hægð og svo fékk ég ekki meira. Iíg fór að grufla ytir því, hvort jólasveinarnir mundu geyma gullin sín í saumakass- anum hennar Boggu eða hvorl þcir væru að get’a henni gjatir.

x

Fanney

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.