Fanney - 01.12.1905, Síða 44

Fanney - 01.12.1905, Síða 44
40 FANNEY. Jón gamli Toríi; þeir sátu á hljóðskraíi inni í hjónaherberg- inu og lagði þaðan megna vín- lykt. Meira að segja mamma var með í ieikjunum. Eg ætla nú ekki að tala mik- ið um allan þann galsa og gauragang, sem íór fram í báð- um hlutum frambaðstofunnar. Það var pantaleikur, biðilsleikur, lijónaleikur og ekkjuleikur með öllum ósköpunum af pöntum og þrautum að leysa, og svo dundu kossarnir, hlátrarnir og lófa- klappið, svo alt lék á reiðiskjálíi. Og óneitanlega var það skemti- legt að sjá mömmu dæmda til að kyssa gamla Egil, niðursetn- ing, sem all af stóð við kvörn- ina, 10 kossa, og að sjá Gunn- ar bróður minn þurfa að kyssa eina vinnukonuna — ég man ekki hvað oft. Svo var ég dæmdur til að kyssa gömlu Gunnu — Ösku-Gunnu, sem við nefndum - - 15 væna kossa, en þegar til átli að taka, var Gunna horfin. Eg frétti það seinna, að henni hafði orðið bumbult af öllum jólamatnum, svo hún liafði skreiðst fram í eldhús og kastað upp í öskustampinn. Ég komst í þann algleyming í allri þessari glaðværð, að ég gleymdi öllum jólasveinum og skrautgripunum í kassanum liennar Boggu — og æfintýrinu í göngunum líka, og vissi ekki hvernig tíminn liefði liðið, því það var komið fram yíir mið- nætti. En inni hjá körlunum var eill- livað á seiði. Fyrst var kallað á mömmu þangað inn, svo á Boggu og seinasl á Sigga. Fólkið leit stórum augum hvað á annað og allir leikirnir fóru í handa- skolum. Eftir dálitla stund komu þau öll út úr herberginu. Bogga og Siggi voru kafrjóð í framan — og voru bæði búin að setja upp hringa! Það var likast því, sem öllu heimilisfólkinu hefði verið gelinn rokna-löðrungur, eins og vant er, þegar eitlhvað kemur llatt upp á menn. IJað var stundarkorn að átta sig á þessu. Hver eftir ann- an setti upp hátíðlegan svip og tók í höndina á þeim Boggu og Sigga og svo i liöndina á pabba og mömmu og gamla Jóni Torfa, og óskuðu þeim til hamingju. Vinnukonurnar ruku meira að segja í Boggu og kystu hana. Ég stóð alveg steinhissa og horfði á þetta alt saman. Hvað átti þetta að þýða? Var nú þctta nýr leikur? Það var gersamlega ómögulegt að vekja glaðværðina aftur. Það hefði ekki verið ómögulegra, þótt einhver hefði lærhrolnað eða hrygghrotnað í alvöru þarna í leikjunum. Vinnufólkið stóð í smáhópum og stakk saman nefj- um og gaut augum hvað til

x

Fanney

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.