Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 8

Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 8
4 Kjartan Helgason: Prestafélagsritið. orðið mörgum þeim manni erfið viðfangs, sem hefir þráð >að sjá Jesú, hvernig hann væri«. Guðfræðin hefir bæði á fyrri og síðari tímum — óviljandi — orðið mörgum manni hindrun, í stað þess að vera vegur til Krists, eins og henni er ætlað að vera. Með allri virðingu fyrir trúfræðinni, þori eg þó að fullyrða, að hún hefir orðið sumum mönnum fremur til hindrunar en hjálpar; fremur til að skyggja á gleðiboðskap Krists, heldur en til að skýra hann; frernur til að draga úr en auka afl hans og áhrif. Guðfræðin hefir ofið þann hjúp utan um mynd Jesú, að erfitt er að sjá í gegnum — auðvitað í góðu skyni. Alt er það gert í þeim tilgangi að vegsama Jesú, og víðfrægja nafn hans. En sjaldan held eg að það hafi náð tilgangi sínum, miklu oftar mishepn- ast. Fagnaðarboðskapur Jesú verður aldrei fegraður með mannasetningum, af hvað miklu viti og snild sem þær kunna að vera framsettar. Það tekst ekki þó að reynt sé, — ekki fremur en hégómagjarnri konu tekst að auka á fegurð sína með því að mála sig í framan og tildra utan á sig skrauti. Trúfræðikerfi kirknanna þykja mörgum vegleg, aðdáanleg og ómissandi. Og víst er um það, að ekki hefir verið kastað til þess höndunum að smíða þau. Til þeirra hefir verið vand- að svo vel sem kostur er á. En þau eru torskilin einfeldning- um. Smælingjunum er ekki auðgert að átta sig á þeim. Og nú hefur einmitt oft verið mikið að því gert, að halda trú- fræðinni að smælingjunum: börnunum hafa verið kendar setn- ingar hennar. Til skamms tíma hefur meiri áhersla verið á það lögð, heldur en á hitt, að kynnast Jesú Kristi sjálfum, lífi hans og starfi. Vmsar guðfræðibækur og guðræknisrit hafa verið miklu meira og vandlegar lesin, en sjálf sögurit nýja testamentisins. Og þannig drekka menn í sig skoðanir annara manna um Jesú, í stað þess að læra af honum, læra hugsanir hans sjálfs; þær verða oft í skugganum, þegar hinn flókni vefur trúfræðinnar er breiddur fyrir þær. Einhverjum kann að mislíka, að ég geri þetta að umtals- efni á þessum stað, því að þetta er viðkvæmt mál og orkar tvímælis. Og ég tek það nærri mér. Mér er það sárt, ef ég
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Prestafélagsritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.