Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 10
6
Kjarían Helgason:
Prestafélagsritiö.
fyrir okkur í textanum: Jesú umkringdan af fjölda vina sinna
og lærisveina, sem allir eru að tala um hann, vegsama hann
og syngja honum lof; en utan við standa aðrir menn, með
meiri eða minni löngun til að nálgast ]esú og sjá hann, en
eiga erfitt með það. Þeirn nægir ekki það, sem vinir hans
hafa um hann að segja. Þeir vilja sjá sjálfir, en geta ekki
fyrir þeim, sem nær standa, sem komnir voru á undan þeim
og eru ef til vill stærri en þeir í andlegum skilningi.
Eg fullyrði ekkert um það, hvað margir þeir séu, sem svo
er ástatt um. Það skiftir ekki máli í þessu sambandi. En það
eitt, að slíkir menn eru til, ætti að vera okkur alvöru-mál.
Sakkeus var ekki nema einn: og þó lét Jesús sér vera það
nóg til þess að koma til móts við hann og hjálpa honum.
Hann lætur sig miklu varða hverja eina mannssál.
Og nú bið ég ykkur, bræður mína, kennimenn kirkjunnar,
og ykkur öll, sem hafið hug á að vísa öðrum mönnum veg
til Krists, ég bið ykkur að reyna að líkjast honum í því, að
taka tillit til þeirra, sem smáir eru og í skugganum, og það
þó að þið haldið, að þeir séu fáir. Takið tillit til þeirra, sem
standa álengdar fjær. Takið tillit til þeirra, sem þykjast þurfa
að sjá sjálfir, skilja eða reyna sjálfir, og láta sér ekki annað
nægja. Þeir eru ekki æfinlega lökustu lærisveinarnir, eða læri-
sveinaefnin. Jesús kom eftir upprisuna til Tómasar, lærisveins-
ins, sem krafðist þess að fá að sjá og þreifa á. Og Jesús
fullnægði kröfu hans ljúflega. Við megum þá ekki heldur
hrinda slíkum mönnum frá. Það væri ekki Kristi líkt. Við
megum ekki breiða svo úr skoðunum okkar um Krist, að
þær verði öðrum mönnum að hjúp fyrir andliti. Við meg-
um ekki gera sjálfa okkur svo breiða, að við skyggjum á
Jesú fyrir einum einasta smælingja. Við megum ekki segja
við nokkurn mann: þú átt að trúa því sem ég segi, eða því
sem kirkjan hefur kent; það er þér vorkunnarlaust, og það
á að vera þér nóg. Heldur ættum við að þoka sjálfum okkur
og okkar skoðunum til hliðar, og benda þeim sem leitar, á
Krist sjálfan, og segja: Komdu og sjáðu; ef þú þráir að kynn-