Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 13
Prcsíafélagsritiö.
Skyggið ekki á.
9
menn aldrei orðið sammála. Það sakar ekki hót — ef við
aliaf sjáum hann upp yfir alt, sem á hann vill skyggja, og
heyrum röddina hans upp yfir allan kliðinn í kringum hann,
heyrum altaf þá röddina »sem ein er eilíflega stilt, þótt allar
heimsins raddir syngi vilt« og meira eða minna falskt. Guð
gefi, að við allir »sjáum með óhjúpuðu andliti endurskinið af
dýrð Drottins*, svo að við »ummyndumst til hinnar sömu
myndar«. Horfum á þá heilögu mynd með ást og lotningu
og tilbeiðslu. Það er það eina, sem getur gert okkur hæfa
til að vera vottar hans og til þess að leiða aðra menn til hans.
Og allir þið, sem þráið að sjá ]esú og kynnast honum, til
þess að láta hann umskapa hjörtu ykkar, verið örugg og látið
ekki hugfallast þó að tálmanir mæti, sem ykkur finst erfitt
að sigrast á. Munið það, að Jesús er að leita ykkar, og hvar
sem hann sér einhvern, sem þráir að nálgast hann, þá mætir
Jesús honum á miðri leið. Hann gefur okkur öllum kost á
að komast í innilegt lífssamband við sig. Ef við horfum til
hans, erum iðulega með hugann og hjartað hjá honum, þá
laðar hann okkur frá ljótleik og synd til heilagrar gleði, og
fær okkur til að opna hjörtun, svo að heilagur andi fái snortið
þau og látið ljós skína inn í sálirnar og gefið þeim líf.
Guð gefi okkur öllum að geta gengið að skylduverkum
okkar í anda og krafti hans, sem dýpst hefur snortið mann-
leg hjörtu. Til hans snúum við nú máli okkar og biðjum:
Drottinn Jesús Kristur, þú sem öllum vilt hjálpa; gef þú
oss náð til þess að færa oss hjálp þína í nyt. Vek þú hjá
öllum löngun til þín, hungur og þorsta eftir þeim eilífu gæð-
um, sem þú vilt gefa. Og láttu alla finna þig, sem leita þín.
Tak þú að þér alla smælingjana og lítilmagnana og auglýstu
þeim hjálpræði þitt. Ðirt þú oss öllum föðurinn og vilja hans.
Vertu kennari vor allra í hinum æðsta sannleika. Vertu leið-
logi vor allra, þegar erfitt er að rata. Vertu frelsari vor allra
Irá villu og synd.
Drottinn, blessa þú störf allra þeirra, sem vilja vera verka-
menn þínir, til þess að efla ríki þitt í sálum mannanna. Láttu
alla viðleitni í þá átt bera mikinn árangur, þótt hún sé í veik-