Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 18

Prestafélagsritið - 01.01.1924, Side 18
14 Geir Sæmundsson: Presiafélagsritið. sjónarmiði var miklu minni en orð væri á gert. Skifti hann fyrirlestrinum í 7 kafla: 1. Innblásturskenningin. 2. Guðleg opinberun. 3. Persóna Krists. 4. Friðþægingarlærdómurinn og fórnardauði Krists. 5. Kraftaverkin. 6. Upprisulærdómurinn. 7. Réttlæting af trú. Svo heimavanur var hann á öllum þeim svæðum, að hann rakti alt þetta langa og flókna mál án þess að hafa annað fyrir framan sig en fáeina punkta, sem hann hafði skrifað niður. Þó sr. Björn liti öðrum augum á biblíuna, eftir að hafa kynst »biblíukritikinni«, þar sem kjarninn og hismið var að- skilið og hvoru fyrir sig ætlaður sinn staður, var hún honum engu síður »bók bókanna* fyrir það. Mun varla sá dagur hafa komið fyrir, að hann ekki leitaði sér uppbyggingar í henni, því hún var í hans augum sannarlegt náðarmeðal, sann- arlegt guðsorð, sannarleg uppspretta til trúar og helgunar, og það ekki aðeins nýja testamentið, heldur gamla testamentið líka. Brunnarnir voru að vísu fleiri til, það játaði hann, en þyrst mannssál eftir Guði með meðvitund um synd og sekt, gæti samt ekki komið að heilsusamari svalalind, en þá er hún kæmi með allar þær vafaspurningar er pína hjartað fram fyrir Guð í heilagri ritningu og léti hann svara þeim þar. Og hon- um gat ekki annað en fundist til um það einkennilega ósam- ræmi, sem ætti sér stað hjá sumum íslenzkum prestum: að þrátt fyrir óbeit þeirra á »biblíukritik,« væru þeir ekki trúaðri en svo á þann stuðning, sem ritningin getur veitt prestinum í kristilegu lífi og kirkjulegri starfsemi, að þeir litu mjög sjald- an, sumir hérumbil aldrei í hana, og þektu hana lítið annað en það sem fyrir þeim lægi í textaröðum helgidaganna. Um afstöðu sr. Björns til »guðspekinnar« og »sálarrann- sóknanna* er mér ekki svo kunnugt, að eg geti út í það farið. En það þori eg að fullyrða, að hinn víðsýni og frjáls- borni andi hans hefir ekki viljað, að lagðir væru steinar í götu þeirra, heldur hitt: að þær fengju óáreittar að sýna það í verkinu, hvort þær væru af þeim lífsins rótum runnar, sem alt það á upptök sín frá, sem ætlað er það hlutverk, að far- sæla og göfga lífið hér í heimi og lyfta því á æðra stig.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Prestafélagsritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prestafélagsritið
https://timarit.is/publication/489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.