Prestafélagsritið - 01.01.1924, Síða 27
Prestafélagsritiö.
Hvað er kristindómur?
23
þeirra miðar að því einu að fullkomna sem mest og þróa sem
bezt í lífi sínu þetta æðsta samfélag við guð, þessa guðrækni,
sem tekin er að búa um sig í hjarta þeirra, og hefir náð tök-
um á því. Þeir vita, að þar sem hún er, þar eiga þeir fræ-
korn, sem bera ávöxt til fullkomins andlegs lífs, til eilífs lífs.
Þessvegna staðhæfa þeir fullum fetum, án þess að þar komist
nokkur efi að, að kristindómurinn sé hin alfullkomna trú, að
þar sé hánarkinu náð í trúar/egu tilliti.
En jafnW.iða þessari staðhæfingu hinnar kristilegu sjálfs-
vitundar fer önnur, sem ekki er síður vert að henni sé
gaumur gefinn.
Þetta fullkomna samband eða samfélag guðs og trúaðrar
mannssálarinnar, þetta háleitasta trúarlega hnoss, þessi guð-
rækni, sem er hvorttveggja í senn gleði mín og styrkleiki
minn, ljós og varmi fyrir mitt innra líf, og það, sem heldur
því við, það e* ekki frá sjálfum mér runnið, eg hefi ekki af
eigin orku framleitt það. Til foreldra minna get eg ekki
heldur rakið rætur þess, þótt eg ef til vill hafi meðtekið frá
þeim þetta trúarhnoss eða þau flutt mér það, eða frá kenn-
urum, sem þau fólu fræðslu mína í uppvextinum. Ekki get eg
heldur rakið þær til kirkju minnar, þótt eg frá fyrstu hafi
hallast og hallist enn að móðurbrjóstum hennar. Því að for-
eldrar mínir, kennarar mínir og kirkjan, sem eg tilheyri, játa
alt eins og eg: Þetta er ekki okkar verk eða frá oss runnið.
Vér höfum ekki selt þér annað í hendur en það, er vér með-
tókum af öðrum, og þeir höfðu aftur meðtekið það af ann-
ara hendi. En einhverstaðar hljóta upptökin að vera, einhver
hlýtur manna fyrstur að hafa eignast þessa trúarreynslu og
látið hana síðan ganga að erfðum til annara, svo að hún
hefir getað borist frá einni kynslóð til annarar alt til vorra
daga. Og það fær þá ekki heldur dulist, hvar upptakanna er
að leita, — að þeirra er að leita í sálu Jesú Krists.
Þar á elfan upptök sín, þessi elfa trúarreynslu þeirrar, sem
um 19 aldir hefir verið gleði og styrkur ótölulegs fjölda sálna.
Þessi lifandi og öfluga trúarreynsla er fyrst orðin til í sálu
Jesú Krists. Með þessu er þá gefið í skyn, að kristindómur-