Prestafélagsritið - 01.01.1924, Page 33
Prestafelagsritið.
Hvað er kristindómur?
29
á Krist er því ekki sama sem það að gjalda jákvæði öllum
kirkjulegum og guðfræðilegum kennisetningum um hann, held-
ur er það sama sem að elska Krist — gefa honum sjálfan
sig til eignar og Iifa að hans vilja. Þar er undirrót hins son-
arlega trúar-samlífs kristins manns við Guð. Því nánar sem vér
gefumst honum f kærleika, því innilegra verður samband vort
við hann, og því innilegra sem sambandið verður, þess nær
kemst guðrækni vor sonarlegri guðrækni hans, og þess betur
kristnir verðum vér.
Hvað er kristindómur? Eg vona nú, að allir kristnir menn
geti fallist á það svar, sem eg hér hefi gefið við hinni miklu
spurningu. Það er trúarleg sjálfsvitund Jesú og sonarlegt trúar-
samlíf hans við föðurinn, eins og þetta hvorttveggja blasir við
mér, sem hefir flutt mér þetta svar. Enda þurfum vér ekki
annað til að sannfærast um sannleika þess en að virða fyrir
oss mynd þeirra manna, sem fremstir hafa verið taldir í sveit
Jesú lærisveina á öllum tímum. Þeir geta verið svo frábrugð-
inna skoðana sem vill um ýms trúarleg sannindi, útlistanir
þeirra og rökstuðningu. En sameiginlegt fyrir þá alla verður,
þegar vel er aðgætt, hið sonarlega trúarsamlíf þeirra við Guð,
og það hafa þeir fengið í arf frá höfundi trúar vorrar sjálf-
um, er fyrstur allra lifði þessu trúarsamlífi og bjó að þessari
guðrækni sem sinni dýrustu eign.
En svo sammála sem menn hljóta að verða um, að þar
sem er hið sonarlega trúarsamlíf ]esú við föðurinn, þar sé
fundið sjálft insta eðli hinnar nýju trúar, sem Jesús flutti
heiminum, þá vantar mikið á, að menn séu jafn sammála, er
kemur til útlistunar þessarar meginhugsunar og frekari greina-
Serðar á innihaldi hennar. Þetta megum vér ekki láta á oss
fá; því að hjá þessu verður ekki komist svo ólíkum forsend-
um, sem menn einatt ganga út frá við slíkar útlistanir alt eftir
því trúarlegu umhverfi, sem þeir lifa í. Til dæmis verða for-
sendurnar aðrar hjá kaþólskum manni en manni, sem er mót-
mælendatrúar, hjá lúterskum manni aðrar en hjá kalvinskum.
En þetta skerðir ekki sjálfa einingu trúarinnar. Trúin er jafn
e‘n fyrir því þótt útlistanirnar séu margar á staðreyndum trú-