Prestafélagsritið - 01.01.1924, Qupperneq 41
Presiafélagsritið.
Um kirkjulíf á Englandi.
37
an stærsiu kirkjudeildarinnar, þjóðkirkjunnar sjálfrar. En ekki
hafa utanþjóðkirkjumennirnir heldur komist undan því, að mis-
munandi stefnur næðu þar tökum á mönnum og skiftu í
flokka. Hvergi ber þó meir á þessu en meðal »meþódista«.
Eru þeir klofnir í 5 flokka eða deildir, hverja með sínu sér-
staka nafni og sérskoðunum á einhvern hátt. Þó er nú að
draga saman með deildum þessum og miklar horfur taldar á,
að þær innan skamms sameinist allar til bróðurlegrar sam-
vinnu í eitt allsherjar kirkjufélag. —
Enginn mun geta ferðast um England án þess að dást að
mörgu og fögru kirkjuhúsunum, sem blasa við manni víðs-
vegar um landið. Eru mörg kirkjuhús biskupakirkjunnar afar-
tilkomumikil, bæði að uían og innan, og sjást þar stíltegundir
átta alda, því að svo gamlar eru sumar kirkjurnar eða ein-
hverjir hlutar þeirra. Maður sem í fyrsta sinni sér jafnmikil-
fenglegar kirkjur sem Pálskirkjuna í London og þjóðarhelgi-
dóminn Westminster Abbey hlýtur að verða frá sér numinn
af undrun og aðdáun. En ferðist menn víða um England,
hljóta þeir að verða enn meir undrandi á því, hve víða um
landið má sjá fagrar kirkjur, bæði í borgum og í sveitaþorp-
um. Eg kom í fjöldamargar kirkjur á ferð minni, bæði til
sveita og í borgum, og dáðist að því, hve fagrar flestar voru
og vel hirtar.
Eitt einkennir öll kirkjuhús biskupakirkjunnar, sem eg sá;
það voru glermáluerkin í kirkjugluggunum. í öllum kirkjun-
um, er eg kom í, voru einhverjir gluggar úr marglitu gleri
með myndum, og í sumum kirkjum var hver einasti gluggi
með slíkri prýði. Voru myndirnar af viðburðum úr gamla og
nýja testamentinu eða af einhverjum mikilmennum kirkjunnar,
sumar gerðar á fyrri öldum, sumar á síðustu árum, margar
aðlaðandi fagrar og dýrindis listaverk. Var unun að skoða
fjölda marga af þessum myndagluggum, en auk þess gáfu
þeir kirkjunum sérkennilegan blæ. Því að birtan, sem kemur
gegnum þessar lituðu gluggarúður, er mild og viðfeldin og
vekur sérstakan geðblæ í hugum manna.
Annað sem einnig einkennir kirkjur þessar, er útbúnaður